fasteignasölur.is
Straumhella 26A
1 af 2

Um eignina

Straumhella 26, 221 HFJ - Virkilega flott endabil með mikili lofthæð og stórri innkeyrsluhurð. 

Um er að ræða einnar hæða upphitað iðnaðar- og geymslu húsnæði sem að skipt er upp í 10 einingar með sameiginlegu inntaksrými. Norðanmegin í húsinu eru fimm rými og
sunnanmegin eru fimm rými. Húsnæðið er skilgreint sem iðnaðar- og geymsluhúsnæði.

Bil 101 er endabil: 157 m2 að grunnfleti, að auki verður uppsett 60m2 skráð milliloft með aðgengi út á svalir, samtals skráð stærð verður því 217,3 m2. 

Nánari upplýsingar: Erling Proppé lgf. , s. 690-1300, erling@remax.is 


Burðarvirki / Frágangur utanhúss
Burðavirki byggingar er límtré. Gólfplata og sökklar eru úr járnbentri steinsteypu á burðahæfu undirlagi.
Grundun, byggingin stendur á fylltum og þjöppuðum púða. Sökklar eru einangraðir að utan með 100mm polystyren einangrun. Sökklar eru einangraðir að innan og með 100
mm polystyren einangrun og sömuleiðis undir gólfplötu. Húsið er klætt með yleiningum, steinullareiningar 80 mm á þykkt.
Þak á húsnæði er léttþak með steinullareiningum 120 mm. Svigunarflokkkur burðavirkis mun koma fram á teikningum verkfræðinga.
Umgangshurðir verða úr PVC. Iðnaðarhurðar eru frauðfylltar samlokuhurðar sem opnast á brautum.
Stálklæddar einingar í útveggjum og þaki verða ekki klædd af.
Litur utanhúseininga, hurða og þaks er dökkur.
Uppsett myndavélakerfi komið í umsjá húsfélags.

Lagnaleiðir, upphitun, loftræsting
Inntök vatns og rafmagns verður í inntaksými. Neysluvatnskerfi er hefðbundið. Varmaskiptir skal vera á neyðsluvatnskerfi sem tekur hitann niður í 30-65 gráður á celsius. Gólfniðurföll eru staðsett í votrýmum sem og í geymsluhúsnæði sjá merkingar á grunnmynd.
Niðurfallsrör og rennur verða utanáliggjandi.

Raflagnir eru utanáliggjandi eða lagðar í steypta plötu. Rafmagnsinntak er sameiginlegt fyrir allt húsið og er staðsett í inntaksrými ásamt töfluskápum fyrir hverja notendur. Húsið verður upphitað með rafmagnsblásurum með hitaveitu sem varmagjafa.

Innveggir og innihurðir
Innveggir á milli geymslurýma eru steinullar yleiningar eru 105 mm á þykkt.

Lóð
Lóðin verður að hluta til í sameign allra, bílastæði verða á lóð meðfram lóðamörkum. Malbikað eftir veðurskilyrðum, apríl/mai. 

Kaupandi yfirtekur virðisaukaskattskvöð sem þinglýst verður á eignina. 

Nánari upplýsingar: 
Erling Proppé lgf. 
s. 690-1300
erling@remax.is 



 

Straumhella 26A

221 Hafnarfjörður
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð217,3 m²
70.000.000 kr.322 þ./m²
InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2330632Fasteignamat5.450.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 2 myndir

Upp ↑