fasteignasölur.is
Breiðvangur 28
Nýtt
1 af 26

Um eignina

BREIÐVANGUR 28 – BJÖRT OG RÚMGÓÐ 4RA HERBERGJA ENDAÍBÚÐ

Böddi, löggiltur fasteignasali hjá Mikluborg, kynnir fallega 134,3 fm endaíbúð á 2. hæð með þremur svefnherbergjum, svölum og þvottahúsi/búr innan íbúðar. Nýbúið er að slípa parketið og eigninni fylgir einstaklega rúmgóð 20,3 fm geymsla með glugga.

Hér er björt og vel skipulögð íbúð með rúmgóðri stofu og borðstofu, Fallegum innréttingum og góðu skápaplássi

Það helsta:

  • Þrjú svefnherbergi.
  • Björt og rúmgóð stofa með útgengi á svalir.
  • Nýbúið að slípa parket.
  • Rúmgott eldhús.
  • Þvottahús/búr innan íbúðar.
  • Rúmgóð 20,3 fm geymsla með glugga.

NÁNARI LÝSING

Forstofa/hol: Komið er inn í rúmgott hol sem tengir saman rými íbúðarinnar. Fallegar ljósar flísar á gólfi.

Eldhús: Nýleg hvít innrétting með borðplötu í gráum og hvítum tónum. Nýleg eldhústæki og flísar á gólfi. Inn af eldhúsi er þvottahús.

Stofa og borðstofa: Bjart og rúmgott rými með nýslípuðu parketi á gólfi og útgengi á svalir.

Hjónaherbergi: Rúmgott með innbyggðum hvítum fataskápum yfir heilan vegg. Parket á gólfi.

Tvö önnur svefnherbergi: Björt herbergi með parketi á gólfi.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, með stóru hornbaðkari og nýlegri hvítri innréttingu með vaski.

Þvottahús: Inn af eldhúsi, með tengjum fyrir þvottavél og þurrkara.

Geymsla: Afar rúmgóð 20,3 fm sérgeymsla með glugga í sameign og góðum nýtingarmöguleikum.

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í húsinu.

Viltu koma að skoða? Hafðu samband og ég sýni þér eignina.

Böddi – löggiltur fasteignasali
Sími: 821 6300
Netfang: boddi@miklaborg.is

Fasteignasalinn þinn – þetta selur sig ekki sjálft.

Breiðvangur 28

220 Hafnarfjörður
TegundFjölbýlishúsStærð134,3 m²Herbergi4
79.900.000 kr.595 þ./m²
Byggingarár1974FasteignanúmerF2073982Fasteignamat76.700.000 kr.Brunabótamat66.650.000 kr.
Skráð hjá
Böðvar Þ. EggertssonLöggiltur fasteignasali821-6300 · boddi@miklaborg.is
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 26 myndir

Upp ↑