1 af 28
Um eignina
Stuðlaberg fasteignasala kynnir í einkasölu góða fjögurra herbergja endaíbúð á annarri hæð(merkt 201) við Tjarnabraut 4 í Reykjanesbæ.
Vel skipulögð íbúð með sérsmíðuðum innréttingum. Alrými íbúðarinnar er opið og bjart. Gólfhiti er í eigninni. Henni fylgir merkt stæði, búið er að leggja fyrir rafhleðslu.
Nánari lýsing:
Anddyri með parkeyti á gólfi og fataskáp.
Stofa og eldhús með parketi á gólfi, stílhrein innrétting í eldhúsi með innbyggðum ísskáp/uppþvottavél og góðri eyju. Frá stofu er útgengt á lokaðar svalir.
Svefnherbergin þrjú eru með parketi á gólfum og fataskápar eru í þeim öllum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Falleg innrétting, upphengt salerni og sturta. Þar er aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Eigninni fylgir geymsla sem staðsett er á fyrstu hæð. Hjólaskýli er á lóð.
Húsið er einangrað að utan og klætt með báruðu áli. Svalahurðir og gluggar úr álklæddu timbri. Innréttingar eru frá Nobilia, fataskápar í herbergjum frá GKS. Hnotu innréttingar í eldhúsi og baðherbergi, innihurðar og fataskápar eru hvítir. Vel skipulögð eign. Stétt við innganga er hellulögð og gönguleiðir með snjóbræðslukerfi.
Frábær staðsetning í nálægð við skóla og leikskóla ásamt verslun og þjónustu. Samgöngur til og frá svæðinu eru auðveldar og örstutt er á Reykjanesbraut.
Allar nánari upplýsingar veitir
Haraldur F. Guðmundsson Löggiltur fasteignasali í s: 6619391
eða halli@studlaberg.is
Tjarnabraut 4
260 Njarðvík
TegundFjölbýlishúsStærð84,2 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
63.900.000 kr.759 þ./m²
Byggingarár2023InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2521938Fasteignamat58.600.000 kr.Brunabótamat56.100.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 28 myndir
Upp ↑


























