fasteignasölur.is
Urðarvegur 20
1 af 25

Um eignina

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is - kynnir til sölu - Urðarvegur 20 Ísafirði - Töluvert endurnýjað, stórt og rúmgott raðhús á tveimur hæðum með bílgeymslu.
Á neðri hæð er forstofa, eitt svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymsla, kyndiklefi, hol með stiga upp á efri hæð. 
Á efri hæð er stórt opið eldhús og borðstofa, stór stofa með útgangi á sólpall, svafnálmugangur, fjögur svefnherbergi og baðherbergi. 
Bílskúr telst vera 28,6 m² að stærð.


Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Rúmgóð forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Eitt svefnherbergi á neðri hæðinni, parket á gólfi. Uppgert baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, hvít innrétting, góð sturta og hiti í gólfi.
Rúmgott þvottahús. Geymsla með hillum inn af þvottahúsi. Kyndiklefi - nýttur sem geymsla í dag.
Hol með parketi á gólfi, hringstigi þar upp á efri hæð.

Efri hæð:
Opið eldhús og borðstofa, parket á gólfi, ágæt innrétting og eyja í eldhúsi, helluborð og ofn, tengi fyrir uppþvottavél. 
Rúmgóð stofa og sjónvarpsstofa með parketi, útgengt út stóran og góðan sólpall, 6 manna heitur pottur fylgir.
Svefnherbergisálma með tveimur fataskápum og parketi á gólfi.
Fjögur svefnherbergi, hjónaherbergi með góðum fataskáp, parket á gólfi.
Þrjú minni herbergi með parketi á gólfum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, baðkar með sturtu og ágæt innrétting, handklæðaofn, hiti í gólfi. 

Bílskúr:
Bílskúr er skráður 28,6 m² að stærð, steypt gólf, vinnubekkur, bílskúrshurð er timburhurð á braut.
Búið er að setja upp varmaveitukerfi í húsinu,  varmaskiptir er í bílskúr. 
Hellulagt bílastæði og stétt fyrir framan hús.

Sólpallur og heitur pottur frá 2024.
Framkvæmdir fyrri eiganda:
Þak á húsinu hefur verið endurnýjað í kringum 2015.
Eldhús líklega uppgert í kringum 2010 sem og bæði baðherbergi.

 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Urðarvegur 20

400 Ísafjörður
TegundRað-/parhúsStærð236,9 m²Herbergi7Svefnherb.5Baðherb.2
81.900.000 kr.346 þ./m²
Byggingarár1970InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2120819Fasteignamat77.250.000 kr.Brunabótamat117.350.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnarstræti 19, 400 ÍsafjörðurSími456-3244

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑