fasteignasölur.is
Natura Apartments
1 af 4

Um eignina

Nature Apartments í San Miguel de Salinas er nýtt og glæsilegt íbúðaverkefni á frábærum stað, aðeins í nokkurra mínútna göngufæri frá miðbænum. Þar má finna fallegar steinlagðar götur, notalegt aðaltorg og fjölbreytta þjónustu og afþreyingu. 

Frekari upplýsingar veitir Jónas löggiltur fasteignasali í síma: 842-1520 eða á netfang jonas@fjarfesting.is
Fleiri eignir í Natura Apartments hér:  https://www.masainternational.is/s?prop_name=Nature+Apartments&p=1

Í boði eru 2ja og 3ja herbergja íbúðir, en byggingarnar eru hannaðar í kringum glæsilega sameiginlega sundlaug og fallega garða.
Íbúðirnar eru rúmgóðar og vel skipulagðar, með opinni stofu og eldhúsrými þar sem stórar svaladyr opnast út á verönd. Eldhúsið eru nútímalegt og hjónaherbergið er með innbyggðum fataskápum og rúmgóðu baðherbergi. Önnur svefnherbergi eru einnig með innbyggðum fataskápum og auka baðherbergi fylgir íbúðunum. Íbúðir á jarðhæð eru með sérgarði.

Í sameigninni eru fallegir garðar, stór sundlaug, leiksvæði fyrir börn og útivistarsvæði. Einnig er boðið upp á sérstakt líkamsræktarsvæði utandyra með tækjum sem henta fyrir fjölbreytta hreyfingu. Lyftur eru í byggingunum og íbúðirnar eru með bílastæði í bílakjallara eða utanvið.
Staðsetningin er afar góð fyrir þá sem vilja njóta bæði stranda og golfvallanna á Costa Blanca. Innan 15 mínútna aksturs má komast á strendur Guardamar del Segura, Torrevieja og Orihuela Costa, auk vinsælla golfvalla á borð við Las Colinas, La Finca og Villamartín.
San Miguel de Salinas er frábær kostur hvort sem leitað er að hluta eða heilsársheimili. Í bænum er öll helsta þjónusta, þar á meðal grunn- og framhaldsskólar með gott orðspor, bankar, heilsugæsla sem er opin allan sólarhringinn, þrjú apótek, stór útisundlaug, fótbolta- og frjálsíþróttavöllur, tennis- og padelvellir, körfuboltavöllur og keiluvöllur.

Bærinn býður einnig upp á fjölbreytt úrval veitingastaða og bara, bæði spænska og alþjóðlega. Í miðbænum einum eru nærri 30 veitingastaðir og barir, sem gerir hinn árlega tapas-viðburð bæjarins sérstaklega vinsælan.
Alicante- og Murcia-flugvellir eru báðir í um 40 mínútna akstursfjarlægð.
Nature Apartments er því frábær kostur fyrir þá sem vilja nútímalega íbúð í notalegu spænsku bæjarumhverfi, með strendur, golfvelli og alla helstu þjónustu innan seilingar.

Við bjóðum upp á 3-4 daga skoðunarferðir allt árið um kring og förum vel yfir svæði, eignir og ferlið við fasteignakaup á spáni.

Natura Apartments

1000 Útlönd - Annað
TegundFjölbýlishúsStærð65 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
26.795.000 kr.412 þ./m²
Byggingarár2027InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF9999998
Skráð hjá
HeimilisfangBorgartúni 31, 105 ReykjavíkSími562-4250

Allar 4 myndir

Upp ↑