fasteignasölur.is
Vaðlatún 6 - 103
1 af 31

Um eignina

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955

Vaðlatún 6 - 103 - Búseturéttur

**Laus til afhendingar**

Til sölu er búseturéttur í Vaðlatúni 6 - 103, 3 herbergja raðhúsaíbúð á einni hæð með stakstæðum bílskúr. Eignin er samtals 122,6 fm. en þar af er bílskúr 27,3 fm. 


Óskað er eftir 28,5 mkr. fyrir búseturéttinn og mánaðarlegt gjald er kr. 266.689 kr. miðað við 1. nóvember 2025. Innifalið í mánaðarlegu gjaldi er afborgun skuldbréfa, fasteignagjöld, tryggingar, rekstur húsfélags, viðhaldssjóður og þjónustugjald.

Frekari upplýsingar um Búmenn má finna hér.  


Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu auk bílskúrs. 

Forstofa er með flísar á gólfi og fataskáp.
Þvottahús er inn af forstofu og geymsla inn af þvottahúsi. Dúkur á gólfi í báðum rýmum og hillur á veggjum í geymslu. 
Stofa og eldhús eru í opnu rými með parket á gólfi, úr stofu er útgengt út á verönd til vesturs. Eldhúsinnrétting er með stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél og bakaraofn er í vinnuhæð. Á eyjum er helluborð og háfur fyrir ofan það. 
Svefnherbergi eru tvö bæði með parket á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er með flísar á gólfi og á hluta veggja, baðkar með sturtutækjum, handklæðaofn, glugga með opnanlegu fagi og innréttingu í kringum vask. 

Bílskúr er stakstæður og er með málað gólf, rafmagnsdrifinni innkeyrsluhurð og þar er vaskur. 

Annað:
-Nýtt parket á allri íbúðinni
-Bílskúr ný málaður, veggir og gólf
-Nýlega búið að bera á timburverönd sem snýr til vesturs

Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
halla@byggd.is
olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Vaðlatún 6 - 103

600 Akureyri
TegundRað-/parhúsStærð122,6 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
Tilboð
Byggingarár2006InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2281447Fasteignamat83.050.000 kr.Brunabótamat58.440.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkipagötu 16, 600 AkureyriSími464-9955

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 31 myndir

Upp ↑