fasteignasölur.is
Álalækur 13
1 af 25

Um eignina

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Bjarta og vel skipulagða 98,9 fm, 4ra herbergja endaíbúð á 3. hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi með lyftu við Álalæk 13 á Selfossi. Eignin státar af miklu og óhindruðu útsýni ásamt einstaklega rúmgóðum, um 19 fm suðursvölum. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni og þvottahús er innan eignar. Húsið er álklætt að hluta og rafhleðslustöðvar eru á bílaplani. Stutt er í leik- og grunnskóla, verslun og aðra almenna þjónustu.

Sýningu á eigninni annast Hallveig Jónsdóttir löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.699-0496 eða með tölvupósti: hallveig@stofnfasteignasala.is

Forstofa er með harðparketi á gólfi og fataskápum.
Stofa er björt og rúmgóð með harðparketi á gólfi. Úr stofu er útgengt á stórar suðursvalir, um 19 fm að stærð, með viðarfjölum á gólfi. Svalirnar bjóða upp á gott útsýni og hafa sambærilegar svalir í húsinu víða verið yfirbyggðar.
Eldhús er með harðparketi á gólfi og snyrtilegri hvítri innréttingu.
Svefnherbergi eru þrjú, öll með harðparketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og panelflísum á veggjum. Þar er upphengt salerni, innrétting með skúffum undir handlaug, sturtuklefi og handklæðaofn.
Þvottahús er innan íbúðar, með flísum á gólfi og vaski.
Geymsla er staðsett í sameign á jarðhæð.
Hjóla- og vagnageymsla er einnig í sameign á jarðhæð.

Helstu kostir eignarinnar:
  • Vel skipulögð endaíbúð
  • Rúmgóðar suðursvalir
  • Mikið og óhindrað útsýni
  • Lyfta í húsinu
  • Þvottahús innan íbúðar
  • Rafhleðslustöðvar á bílaplani.
  • Góð staðsetning með skóla, leikskóla og helstu þjónustu í nágrenninu.
 
Staðsetning og nærumhverfi: Eignin er staðsett í fjölskylduvænu íbúðarhverfi á Selfossi þar sem stutt er í skóla, leikskóla og ýmsa þjónustu. Stekkjarskóli er í göngufjarlægð og einnig leiksskólinn Jötunheimar. Staðsetningin hentar því vel fjölskyldum sem vilja búa í rólegu og þægilegu umhverfi en jafnframt hafa skóla og þjónustu innan seilingar.
 

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Álalækur 13

800 Selfoss
TegundFjölbýlishúsStærð98,9 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
61.700.000 kr.624 þ./m²
Byggingarár2019InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2371377Fasteignamat61.800.000 kr.Brunabótamat62.400.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangLyngás 11, 210 GarðabærSími511-0900 / 661-7788

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑