fasteignasölur.is
Halldóruhagi 14 íbúð 102
Opið hús 13. okt. kl. 17:00–17:45
1 af 21

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is

Halldóruhagi 14 íbúð 102 - Glæsileg og rúmgóð 2-3ja herbergja íbúð á neðri hæð með yfirbyggðri verönd - stærð 93,5 m²


Eignin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í opnu rými, hjónaherbergi, sjónvarpshol sem hægt er að nýta sem annað svefnherbergi, baðherbergi, snyrtingu, geymslu og yfirbyggða verönd.

Nánari lýsing:
Forstofan er með flísum á gólfi, rúmgóðum fataskáp og handklæðaofni.
Stofan og eldhúsið eru í björtu og rúmgóðu opnu rými með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á yfirbyggða, flísalagða verönd. 
Sjónvarpshol í dag er skv. teikningum annað svefnherbergið, en veggur hefur tekinn niður til að opna rýmið við alrými, auðvelt er að loka því af aftur með vegg og hurð.
Eldhúsið er með dökkri innréttingu, eyju með rafmagni og innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Hjónaherbergið er með parketi á gólfi og rúmgóðum fataskáp.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum að mestu, walk-in sturtu, vegghengdu wc, handklæðaofni, opnanlegum glugga, innréttingu með miklu skúffiplássi og annari innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Snyrtingin er með flísum á gólfi og lítilli innréttingu með handlaug.
Geymslan er við forstofu með flísum á gólfi.
Veröndin er yfirbyggð með svalalokun og þar eru flísar.

Annað:
- Sérmerkt bílastæði fylgir eigninni með rafmagnsstaur sem tengdur er rafmagnsmæli íbúðar.
- Yfirbyggð og flísalögð verönd með svalalokun.
- Gólfhiti er í íbúðinni.
- Sameiginlegt inntaksrými nýtist einnig sem sameiginleg geymsla.
- Íbúðin er í austurenda hússins.

Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Halldóruhagi 14 íbúð 102

600 Akureyri
TegundFjölbýlishúsStærð93,5 m²Herbergi3Svefnherb.1Baðherb.2
69.900.000 kr.748 þ./m²
Byggingarár2019InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2502506Fasteignamat63.300.000 kr.Brunabótamat60.200.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 21 myndir

Upp ↑