Um eignina
Miklaborg kynnir:
Góð og björt 74 fm, 3ja herbergja íbúð á efri hæð í þríbýlishúsi með sér inngangi.
NÁNARI LÝSING: Gengið upp tröppur inn að inngangi á bakhlið hússins. Komið inn í anddyri með fatahengi. Þaðan er gengið inn i alrými sem skiptist í eldhúskrók og rúmgóða stofu með stórum gluggum og fallegu útsýni til sjávar. Baðherbergið er nýlega endurnýjað, sturta, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, upphengd salerni og gluggi. Hjónaherbergið er rúmgott og með stórum gluggum. Barnaherbergið er rúmgott. Barnaherbergi er skráð sem geymsla á teikningum en hefur verið nýtt sem svefnherbergi.
GÓLFEFNI: Parket er á öllum gólfum nema baðherbergi sem er flísalagt.
GÓÐ OG VEL SKIPULÖGÐ EIGN Í HJARTA BORGARNESS
Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is
Egilsgata 6
Staðsetning
Allar 13 myndir
Upp ↑











