fasteignasölur.is
Lundur 88
Opið hús 12. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 35

Um eignina

Nýtt á skrá! Lundur 88 - Glæsileg og vel skipulögð 3ja herb. íbúð með rúmgóðum svölum til suðurs með svalalokun og sérstæði í bílakjallara.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til afar fallega íbúð í vönduðu húsi byggðu af BYGG við Lund 88 í Kópavogi. Um er að ræða 112,3 fermetra íbúð í lyftuhúsi á 3. hæð með 2 svefnherbergjum (hjónaherbergi með fataherbergi inn af), rúmgóðri stofu með gluggum til suðurs, fallegu eldhúsi með eyju sem er opið við stofu, rúmgóðum yfirbyggðum svölum til suðurs, baðherbergi með sturtu og baðkari og góðu þvottaherbergi. Gólfhiti í allri íbúðinni. Sérgeymsla í kjallara sem er 7,1 fermetrar og sérmerkt stæði í bílakjallara. 

Sameign hússins er afar snyrtileg með flísum á ytra anddyri og teppum á sameign. Lyfta er í húsinu sem gengur niður í bílakjallara/geymslugang. Rafmagnshurðaropnun er á aðalhurðum í sameign. Myndavéladyrasími er í húsinu. Þvottastæði í bílakjallara. Lóðin er snyrtileg og frágengin með hellulagðri stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu og sameiginlegum malbikuðum stæðum. Fallegt svæði norðan megin við húsið með leiktækjum og púttvelli.

Við hönnun hússins var haft að leiðarljósi að hafa íbúðirnar bjartar og rúmgóðar með stórum gluggum sem ná niður í gólf og hita í gólfum. Íbúðirnar eru vandaðar og í þeim eru íslenskar innréttingar frá Brúnás og innbyggðum blöndunartækjum á baðherbergjum. Húsið eru álklædd og eru því viðhaldslítil. Stutt er í Fossvoginn með sinni einstöku fegurð, Öskjuhlíðin og rómaðar gönguleiðir tengja Lundinn saman á þann hátt að gott jafnvægi er á milli byggðar og náttúru. Hverfið er byggt upp með sex kjörnum og stórum grænum svæðum sem flæða á milli þeirra. Stutt er í margvíslega þjónustu og afþreyingu. Smáralindin, Kringlan svo ekki sé minnst á menningarlífið í Gjánni, s.s. Salinn og Gerðarsafn er steinsnar frá Lundi.

Nánari lýsing:

Forstofa: Með flísum á gólfi og góðum skápum. 
Stofa: Er rúmgóð, með parketi á gólfi og gluggum til suðurs. Stofa rúmar mjög vel setustofu, borðstofu og sjónvarpsrými. Útgengi á svalir frá stofu.
Svalir: Eru rúmgóðar og snúa til suðurs. Yfirbyggðar með opnanlegri svalalokun og flísum á svalagólfi.
Eldhús: Með parketi á gólfi og fallegri eikar eldhúsinnréttingu frá Brúnás. Eldhús er með eyju og opið við stofu. Stál AEG bakaraofn, AEG örbylgjuofn, AEG spansuðu helluborð, stál háfur og tengi fyrir uppþvottavél. Flísar á milli skápa og gluggi til norðurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og á veggjum. Gólfhiti. Baðkar með sturtutækjum og flísalögð sturta með innbyggðum blöndunartækjum. Falleg innrétting við vask, upphengt salerni, handklæðaofn og útloftun.
Hjónaherbergi: Með parketi á gólfi, glugga til suðurs og útgengi á svalir. Fataherbergi er staðsett inn af hjónaherbergi.
Fataherbergi: Með parketi á gólfi og góðum innréttingum.
Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi, góðum skápum og glugga til norðurs.
Hol/sjónvarpsstofa: Með parketi á gólfi.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, vaski, tengi fyrir þvottavél/þurrkara og útloftun.

Sérmerkt bílastæði: Er vel staðsett í bílakjallara (34). Bílaþvottastæði er staðsett í bílakjallara.
Sérgeymsla: Í kjallara er 7,1 fermetrar að stærð.
Hjóla- og vagnageymsla: Er staðsett í sameign hússins.

Nánari upplýsingar:
Bókið skoðun hjá Heimi Hallgrímssyni lögg. fasteignasala í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
109.900.000 kr.979 þ./m²
+214,0% á 14 árum
26. júní 2012Fyrsta sala
35.000.000 kr.312 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Lundur 88

200 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð112,3 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
109.900.000 kr.979 þ./m²
Byggingarár2011InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2303689Fasteignamat108.250.000 kr.Brunabótamat73.760.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 35 myndir

Upp ↑