fasteignasölur.is
Suðurgata 24
1 af 27

Um eignina

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu – Suðurgata 24, Reykjanesbæ

Um er að ræða fallega og rúmgóða eign í þríbýlishúsi, staðsetta í hjarta Keflavíkur. 
Eignin er á efstu hæð með sérinngangi og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, m.a. góða útleigumöguleika. 

*** Stúdíóíbúð í bílskúr (ósamþykkt) – góðir útleigumöguleikar
*** Nýlega endurnýjað eldhús og baðherbergi
*** Suðursvalir
*** Gott geymslupláss í risi

Nánari upplýsingar veita:
Halla Vilbergs Löggiltur fasteignasali, í síma 772-7930 og á netfanginu halla@allt.is
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5500, tölvupóstur pall@allt.is.


Skipulag eignar:

Gengið er upp steyptar tröppur að sérinngangi. Við tekur stigagangur með steinteppi og fallegu járnhandriði sem leiðir upp í íbúðina.
Forstofa/gangur: Með aðstöðu fyrir fatahengi á palli.
Eldhús: Smekklega endurnýjað með fallegri innréttingu þar sem viður og hvítur litur fara saman. Granítborðplötur, eyja með helluborði, bakaraofn í vegg, djúpur vaskur og innbyggð uppþvottavél og ísskápur.
Hjónaherbergi: Rúmgott með parketi og nýlegu fataherbergi inn af.
Svefnherbergi: Þrjú barnaherbergi, öll parketlögð. Fataskápar í einu þeirra.
Baðherbergi:  Flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtu og glerþili, upphengt salerni. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Ris: Gott geymslupláss með niðurdraganlegum stiga.

Rúmgóður bílskúr þar sem útbúin hefur verið stúdíóíbúð (ósamþykkt) með nýlegum gólfefnum og innréttingum.
Sameiginlegt þvottahús er í kjallara. Eignaskiptayfirlýsing er til frá árinu 1999
.

Endurbætur og viðhald sem eignin hefur fengið.
*** Eldhús endurnýjað árið 2006.
*** Baðherbergi endurnýjað árið 2006.
*** Rafmagn endurnýjað að hluta árið 2006.
*** Þak hússins endurnýjað að hluta árið 2005.
*** Húsið málað að utan árið 2017.
*** Stúdíóíbúð útbúin í bílskúr um árið 2019 

*** Þak húss endurnýjað að hluta árið 2005
*** Raflagnir endurnýjaðar að hluta árið 2006
*** Þak á bílskúr hefur verið endurnýjað að hluta.


Eignin er staðsett miðsvæðis í Keflavík þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, verslanir, heilbrigðisþjónustu og fjölbreytta afþreyingu.

Falleg og vel við haldin eign með mikla möguleika á góðum stað í Keflavík.


 

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Suðurgata 24

230 Reykjanesbær · Keflavík
TegundHæðStærð168,3 m²Herbergi7Svefnherb.5Baðherb.1
69.900.000 kr.415 þ./m²
Byggingarár1956InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2090707Fasteignamat62.500.000 kr.Brunabótamat89.450.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnargata 62, 230 ReykjanesbærSími560-5500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 27 myndir

Upp ↑