fasteignasölur.is
Kristnibraut 4
Opið hús 14. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 26

Um eignina

Prima fasteignasala og Björgvin Þór Rúnarsson lgf. kynna eignina Kristnibraut 4, 113 Reykjavík

Falleg, rúmgóð og vel skipulögð 98,9 fm 3ja herberja íbúð á annari hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi í Grafarholti. Glæsilegt útsýni er úr íbúðinni.
Vinsæl staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla og fallega náttúru. Sér þvottaherbergi er innan íbúðar.
Nýlega (2023) var húsið málað og múrviðgert. Þá voru gluggar einnig lagfærði þar sem þurfti. Skipt var um dúk á þaki árið 2020 að sögn eiganda.

Nánari lýsing íbúðar:
Íbúðin er 3ja herbergja og skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, tvö rúmgóð svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og þvottahús.
Forstofa: komið er inn á forstofugang með parketi á gólfi og fataskáp sem nær upp í loft.
Eldhús: Eldhús eignarinnar er rúmgott og er opið inn í borðstofu. Falleg IKEA innrétting og gott skápapláss. Gluggi er í eldhúsi og er parket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Stofurnar liggja saman og eru mjög rúmgóðar og bjartar, (samtals um 46 fm). Útgengt er á stórar svalir með miklu útsýni út í náttúru og yfir borgina. Parket á gólfum. 
Hjónaherbergi: Hjónaherbergi er stórum IKEA fataskápum sem ná upp í loft og parket á gólfi. Mikið útsýni er frá svefnherbergjum. 
Barnaherbergi: Barnaherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Ljósar flísar eru á veggjum og gólfi. dökk innrétting er við vask og glerskápur fyrir ofan.  Baðkar með sturtu aðstöðu og upphengt salerni. Gluggi er á baðherberginu.
Þvottahús: innan íbúðar er þvottahús með glugga. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara og eru flísar á gólfi.
Geymsla: Geymsla er á fyrstu hæð hússins. 

Björgvin Þór Rúnarsson löggiltur fasteignasali / s.8551544 / bjorgvin@primafasteignir.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.

Kristnibraut 4

113 Reykjavík · Grafarholt
TegundFjölbýlishúsStærð98,8 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
74.900.000 kr.758 þ./m²
Byggingarár2001InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2253177Fasteignamat70.200.000 kr.Brunabótamat57.150.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSuðurlandsbraut 6, 108 ReykjavíkSími511-7030

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 26 myndir

Upp ↑