fasteignasölur.is
Tröllahraun 55
1 af 8

Um eignina

Helgafell fasteignasala og Jón G. Sandholt kynna fullbúið parhús að Tröllahrauni 55, samtals 164,5 fm að stærð, þar af 31 fm bílskúr. Eignin skilast fullbúin að innan og er áætluð afhending um áramótin 2026/2027. Lóð verður grófjöfnuð.

Um er að ræða timburhús á steyptum sökklum með kraftsperrum í þaki. Húsið er klætt með litaðri báruálklæðningu í lit RAL 7022. Þak er klætt ólituðu aluzink, með svörtum álrennum og sléttri svartri álklæðningu á þakkanti. Gluggar og útihurðir eru úr timbri og áli, svört að utan og hvít að innan, með tvöföldu gleri.

Eignin skilast fullbúin að innan með gólfhita, loftskiptikerfi, innréttingum, gólfefnum, innbyggðri lýsingu og eldhústækjum. Upptekið loft er að hluta í stofu og eldhúsi.

Fyrir nánari upplýsingar veitir Jón G. Sandholt, löggiltur fasteignasali, í síma 777-2288 eða jon@helgafellfasteignasala.is.

Skipulag samkvæmt teikningu

Anddyri – 5,8 fm
Komið er inn í anddyri með fataskáp. Innangengt er í bílskúr frá anddyri.

Stofa / eldhús / alrými – 48,6 fm
Bjart og rúmgott alrými með góðu plássi fyrir stofu og borðstofu. Upptekið loft að hluta gefur rýminu aukna lofthæð. Eldhús með innréttingu frá IKEA eða sambærilegu. Eldhústæki frá IKEA, bakaraofn, 80 cm helluborð og innbyggð uppþvottavél.

Hjónaherbergi – 17,9 fm
Rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi.

Svefnherbergi I – 10,2 fm
Svefnherbergi II – 11,5 fm


Baðherbergi – 7,2 fm
Baðherbergi með innréttingu frá IKEA eða sambærilegu, innbyggðu salerni, innbyggðum sturtutækjum og krómum blöndunartækjum frá Hans Grohe eða sambærilegu. Gólf flísalagt með 60x60 flísum og tveir veggir klæddir Wedi-plötum. Handklæðaofn á baðherbergi.

Þvottahús – 4,3 fm
Þvottahús með innréttingu frá IKEA eða sambærilegu og flísalögðu gólfi með 60x60 flísum.

Bílskúr – 31 fm
Innangengt í bílskúr frá anddyri. Bílskúrshurð með rafmagnsopnara. Gólf málað með epoxy og gifs í lofti. Gert er ráð fyrir bílahleðslustöð utandyra.

Frágangur að utan
  • Útveggir klæddir litaðri báruálklæðningu í lit RAL 7022.
  • Þak klætt ólituðu aluzink á lektum.
  • Svartar álrennur.
  • Slétt svört álklæðning framan á þakkanti.
  • Bandsöguð timburklæðning, máluð svört, neðan í þakkanti.
  • Timbur/ál gluggar og útihurðir, svört að utan og hvít að innan, frá Byko eða sambærilegu.
  • Tvöfalt gler í gluggum.
  • Lóð grófjöfnuð.
  • Mulningur í bílastæði.
  • Ruslaskýli á lóð.
  • Ídráttarrör að heitum potti.
  • Gert ráð fyrir bílahleðslustöð utandyra.
  • Útiljós í þakkanti.

Frágangur að innan
  • Veggir klæddir með gipsi á 12 mm spónaplötum eða OSB-plötum.
  • Steyptur eldvarnarveggur milli íbúða og steyptur endaveggur í bílskúr.
  • Loftadúkur í loftum, nema í bílskúr þar sem er gifs.
  • Upptekið loft að hluta í stofu og eldhúsi.
  • Gólfhitalagnir ísteyptar í gólfplötu.
  • Loftskiptikerfi frá Íshúsinu eða Stjörnublikk með útsogi úr rakarýmum og innblæstri í önnur rými.
  • Innréttingar frá IKEA eða sambærilegu í eldhúsi, þvottahúsi og á baðherbergi.
  • Hvítar innihurðir frá Birgisson með stálhúnum.
  • Quick Step parket frá Harðviðarvali eða sambærilegt á gólfum.
  • Flísalögð gólf á baðherbergi og þvottahúsi með 60x60 flísum.
  • Tveir veggir á baðherbergi klæddir Wedi-plötum frá Þ. Þorgrímssyni.
  • Handklæðaofn á baðherbergi.
  • Bílskúrsgólf málað með epoxy.

Hreinlætistæki og eldhústæki
  • Hreinlætistæki frá Hans Grohe eða sambærilegu.
  • Innbyggt salerni.
  • Innbyggð sturtutæki.
  • Krómuð blöndunartæki.
  • Eldhústæki frá IKEA: Bakaraofn, 80 cm helluborð, innbygð uppvöskunarvél.

Lýsing og málning
  • Húsið málað að innan í einum lit að vali kaupenda.
  • Innbyggð ljós fullfrágengin.
  • Útiljós í þakkanti.
ATH: Myndir eru unnar með gervigreind og eru eingöngu til viðmiðunar. Endanlegt útlit, efnisval og frágangur eignarinnar miðast við skilalýsingu seljanda. Innréttingar og efnisval getur tekið lítilsháttar breytingum miðað við söluyfirlit.

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Tröllahraun 55

810 Hveragerði
TegundRað-/parhúsStærð164,5 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
107.900.000 kr.656 þ./m²
Byggingarár2026InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2541334Fasteignamat61.750.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangStórhöfða 33, 110Sími566-0000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 8 myndir

Upp ↑