fasteignasölur.is
Melasíða 8 - 101
Opið hús 13. okt. kl. 16:30–17:00
1 af 36

Um eignina

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala 

Melasíða 8 - 101 

Um er að ræða bjarta og mikið endurnýjaða þriggja herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýli í Síðuhverfi. Eignin er skráð samtals 88,9 fm. þar af er geymsla skráð 5,6 fm. 

Eignin skiptist í forstofu, baðherbergi, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu og þvottahús. Eigninni tilheyrir sér geymsla í sameign í kjallara og hlutdeild í vagna og hjólageymslu. 
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp með rennihurðum. 
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, sturta með glerskilrúmi, innrétting við vask ásamt speglaskáp, upphengt wc og opnanlegur gluggi. 
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parket á gólfi og fataskápur í stærra herberginu. Það var áður fataskápur í minna herberginu sem búið er að taka og vantar því smá parket bút þar sem skápurinn var. 
Eldhús með flísum á gólfi, góð innrétting með flísum milli efri og neðri skápa, stæði fyrir uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð. 
Stofan björt með parket á gólfi, gluggar til tveggja átta, útgengi út á svalir til suðurs úr stofu. 
Þvottahús með flísum á gólfi, bekkplata með vask, efri skápar og hillur. 

Annað: 
- Ljósleiðari 
- Baðherbergi endurnýjað árið 2025
- Eldhús endurnýjað árið 2024
- Stutt í leik- og grunnskóla 
- Drenað að hluta 2025, verk ólokið


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 

Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
greta@byggd.is
halla@byggd.is
bjorn@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Melasíða 8 - 101

603 Akureyri (utan Glerár)
TegundFjölbýlishúsStærð88,9 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
54.000.000 kr.607 þ./m²
Byggingarár1989InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2149079Fasteignamat48.300.000 kr.Brunabótamat49.250.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkipagötu 16, 600 AkureyriSími464-9955

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 36 myndir

Upp ↑