fasteignasölur.is
Vesturbakki 9 bil nr 102
1 af 3

Um eignina

Borg fasteignasala kynnir: Nýtt iðnaðar- og þjónustuhúsnæði við Vesturbakka nr 9 bil nr 102, Þorlákshöfn. Húsið skiptist í fjóra séreignarhluta ásamt sameiginlegu tæknirými.

Skipting hússins:
Bil nr 0101 er 203,4 fm, verð Tilboð
Bil nr 0102 er 203,1 fm, verð Tilboð
Bil nr 0103 er 203,4 fm, verð Tilboð
Bil nr 0104 er 209,3 fm. verð Tilboð

Lofthæð: 6m við útvegg og 5.7m við mænu.

Byggingarlýsing: Sökklar eru forsteyptir og botnplata staðsteypt. Útveggir eru úr forsteyptum samlokueiningum með sléttri veðurkápu. Gert er ráð fyrir að veðurkápa verði máluð í ljósum lit. Þak er úr holplötum með einangrun og þakdúk. Gluggar og hurðir eru úr áli samkvæmt lýsingu. Milli séreignarhluta eru forsteyptir brunahólfandi veggir með brunamótstöðu.
Upphitun og lagnir: Gert er ráð fyrir upphitun með vatnshitablásurum. Inntök eru í sameiginlegu tæknirými og vatns- og hitalagnir eru utanáliggjandi.
Lóð og aðkoma: Samkvæmt afstöðuteikningu eru 12 bílastæði á lóðinni og gert ráð fyrir að minnsta kosti einu stæði við innkeyrsluhurð. Sérafnotafletir og kvaðir um akstursleiðir eru sýnd á teikningu.
Sameign: Tæknirými er sameign allra eignarhluta samkvæmt byggingarlýsingu.
Notkun húsnæðis: Húsnæðið er skilgreint sem atvinnuhúsnæði í notkunarflokki 1. Samkvæmt byggingarlýsingu ber rekstraraðila að afla tilskilinna starfsleyfa hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands vegna starfsleyfisskyldrar starfsemi.

Nánari upplýsingar:
Úlfar Þór Davíðsson Lögg. fasteignasali í síma 788 9030 - ulfar@fastborg.is
Victor Levi R. Ferrua Lögg. fasteignasali í síma 868 2222 - victor@fastborg.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
4. Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3 % af brunabótamati, þegar það er innheimt. 

Vesturbakki 9 bil nr 102

815 Þorlákshöfn
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð203,1 m²Herbergi1Baðherb.1
Tilboð
InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2524741Fasteignamat14.000.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSíðumúli 23, 108 ReykjavíkSími519-5500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 3 myndir

Upp ↑