Um eignina
407,4 fm fasteign á tveimur hæðum með 15 útleigueiningum við Stapahraun 2 í Hafnarfirði. Eign sem býður upp á mikla möguleika.
Eignin skiptist þannig að neðri hæðin er 202,8 fm og efri hæðin 204,6 fm, samtals 407,4 fm skv. Þjóðskrá Íslands.
Húsið er allt í leigu í dag með góðum leigjendum - Mögulegt fyrir væntanlegan kaupanda að yfirtaka leigusamningana.
Eignin er úttekin af Slökkvuliði höfðuðborgarsvæðis varðandi brunavarnir. Heildarleigutekjur á mánuði ca. 2.500.000 kr.
Nánari upplýsingar veitir:
Þórarinn Thorarensen sölustjóri s. 770-0309 eða th@aldirfasteignir.is
Sveinn Eyland lögg. fast.
Samtals 15 stúdíóíbúðir eru í húsinu.
- Allar íbúðir hafa sér eldhúskrók og baðherbergi með sturtu.
- Stærðir eru frá 13 upp í 30 fm.
- Hverri íbúð fylgir sérmerkt stæði á lóð.
- Húsvörður býr í húsinu (Sér m.a. um vikuleg þrif á sameign)
Á neðri hæðinni er anddyri, 7 íbúðir, hol með nýjum þvottavélum og þurrkurum, sameiginleg geymsla með hillukerfi.
Á efri hæðinni eru 8 íbúðir, innrétting á gangi og útg. á svalir.
Húsið er allt hið snyrtilegasta að innan og utan og hefur verið mikið endurnýjað upp á síðkastið.
Bílastæði fyrir hverja íbúð á lóðinni.
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.
Stapahraun 2
Staðsetning
Allar 6 myndir
Upp ↑




