fasteignasölur.is
Hörðaland 10
Nýtt
1 af 25

Um eignina

Miklaborg kynnir:

Virkilega björt og vel skipulögð 3ja til 4ra herbergja, 85 fm íbúð á 2.hæð (miðhæð) í vel viðhöldnu litlu fjölbýli með svölum í suður.

NÁNARI LÝSING: Komið inn í hol með skápum. Eldhús er með fallegri, nýlegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og borðkrók. Stofan er rúmgóð og björt og skipist í stofu, borðstofu og sjónvarpshol. Útgengt er frá stofu á stórar suðursvalir. Hjónaherbergi er sérlega rúmgott og með skápum. Gott barnaherbergi. Baðherbergið er nýlega endurnýjað. Flísalagt í hólf og gólf, sturta, upphengt salerni og góð innrétting. Við baðherbergið er búið að útbúa aðstöðu fyrir þvottavél og þurrrkara. Í kjallara er góð geymsla.


GÓLFEFNI: Fallegt viðarparket er á öllum gólfum nema baðherbergi en þar eru flísar.


Að sögn eiganda þá hefur bæði sameign og íbúðin sjálf verið mikið endurnýjuð á síðustu árum. Skipt var um járn og pappa á þaki, allir gluggar og gler á suðurhlið endurnýjaðir. Eigandi endurnýjaði bæði baðherbergi og eldhús nýlega.


Björt og falleg eign með svölum í suður á frábærum stað í Fossvoginum.


Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is

Hörðaland 10

108 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð84,5 m²Herbergi4Svefnherb.2Baðherb.1
77.900.000 kr.922 þ./m²
Byggingarár1968InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2037394Fasteignamat73.550.000 kr.Brunabótamat47.600.000 kr.
Skráð hjá
Ólafur FinnbogasonEigandi og löggiltur fasteignasali822-2307 · olafur@miklaborg.is
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑