Um eignina
Nánari lýsing:
Forstofa með fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús er með snyrtilegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og flísar á gólfi og á milli skápa.
Stofa er með parket á gólfi og útgengi á svalir til suðurs.
Baðherbergi er með sturtu, ljósri innréttingu og flísum á gólfi og veggjum.
Hjónaherbergi er með fataskápum og parket á gólfi.
Barnaherbergi er með parket á gólfi.
Svefnkrókur hefur verið útbúinn í holi. Þar er parket á gólfi.
Þvottahús er inn af eldhúsi.
Sérgeymsla er í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
Íbúðin er vel staðsett þar sem stutt er í leik- og grunnskóla og alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Kristín María Stefánsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 837-1177 eða í tölvupósti á kristin@trausti.is eða Katarzyna Kleinschmidt aðstoðarmaður fasteignasala í síma 774-2730 eða í tölvupósti á katarzyna@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Hjallabraut 23
Staðsetning
Allar 19 myndir
Upp ↑

















