fasteignasölur.is
Stuðlaberg 94
Opið hús 13. okt. kl. 16:30–17:00
1 af 49

Um eignina

Nýtt á skrá! Stuðlaberg 94 Hafnarfirði - Frábær fjölskyldeign með 4-5 svefnherbergjum, stórum garði og bílskúr!

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar fallegt 5-6 herbergja 175,9 fermetra parhús á tveimur hæðum auk rishæðar. Eignin skiptist í 157,9 fermetra íbúðarfermetra og góðan 18,0 fermetra bílskúr, samtals 175,9 fermetrar að stærð. Fjögur svefnherbergi eru í húsinu í dag en gætu verið fimm (ef rishæðin er nýtt eins og upprunalegar teikningar gera ráð fyrir sem tvö barnaherbergi). Um er að ræða afar vel staðsett hús með fallegu umhverfi í grónu fjölskylduhverfi (innst lokuðum botnlanga) við Stuðlaberg í Hafnarfirði. Húsið er afar sjarmernandi með fallegri gluggasetningu og arni í stofu. Húsið fengið mjög gott viðhald í gegnum árin og ber húsið þess vel merki að utan sem innan. Húsið og þakið var málað fyrir u.þ.b. 3 árum síðan og búið er að skipta um mest af gleri í gluggum á norður og austurhlið hússins. Þá var baðherbergið endurnýjað fyrir 3-4 árum síðan og gestasnyrting endurnýjuð fyrir u.þ.b. 2 árum síðan.

Aðalhæðin (neðri hæð): Skiptist í forstofu, hol, eldhús/borðkrók, stofu, geymslu I, þvottaherbergi og geymslu II inn af þvottaherbergi. 

Efri hæð: Gengið er upp steyptan teppalagðan stiga upp á efri hæð (miðhæð). Sú hæð skiptist í sjónvarpsrými og lítið vinnurými, hjónaherbergi, svefnherbergi II, svefnherbergi III og baðherbergi. Útgengi úr hjónaherbergi á svalir.

Rishæð: Er mjög rúmgóð og er nýtt sem eitt rými í dag. Samkvæmt teikningu er rishæð teiknuð sem tvö barnaherbergi og væri hægt að nýta rýmið þannig.

Bílskúr: Er 18,0 fermetrar með sérstæði fyrir framan. Upphitaður með heitu og köldu vatni. Gluggar til austurs og rafmagnshurðaopnun á bílskúrshurð.

Stór og falleg lóð með trjágróðri og beðum. Lóðin er skjólgóð og með rúmgóðri afgrirtri viðarverönd með heitum potti. Framan við hús er hellulögð stétt að húsi og er bílskúr sérstæður í bílskúrslengu. Stór geymsluskúr er á lóðinni sem var byggður með það í huga að geta geymt fellihýsi (einnig hlið á grindverki til þess að koma því inn á lóðina í geymslu).


Nánari lýsing:
Aðalhæð (neðri hæð).

Forstofa: Með flísum á gólfi og skápum.
Gestasnyrting: Var endurnýjað fyrir u.þ.b. tveimur árum síðan. Flísar á gólfi og veggjum, salerni, vaskur, handklæðaofn og gluggi til vesturs.
Geymsla I: Er staðsett inn af forstofu með flísum á gólfi.
Þvottaherbergi: Er staðsett inn af forstofu. Flísar á gólfi og gott vinnuborð með vaski. Gluggar til vesturs sem hleypa inn góðri vinnubirtu. Þvottasnúrur og hillur.
Geymsla II: Er staðsett inn af þvottaherbergi. Flísar á gólfi og gluggar til austurs. Útgengi úr geymslu á framlóð hússins.
Hol: Með flísum á gólfi. Þaðan er stigi á efri hæðir hússins.
Eldhús: Með flísum á gólfi og gluggum til norðurs. Útgengi frá eldhúsi á viðarverönd í bakgarði. Falleg viðar/hvít eldhúsinnrétting með Siemens studioline bakaraofni og spansuðu helluborði. Tengi fyrir uppþvottavél og góður borðkrókur.
Stofa: Er rúmgóð með flísum á gólfi. Rúmar vel setustofu og borðstofu. Fallegur arinn og gluggar til austurs.

Bílskúr: Er 18,0 fermetrar með sérstæði fyrir framan. Upphitaður með heitu og köldu vatni. Gluggar til austurs.

Efri hæð: Gengið er á milli hæða um steyptan teppalagðan stiga.
Sjónvarpsstofa:
Með harðparketi á gólfi og gluggum til norðurs. Inn af sjónvarpsstofu/holi kemur rými sem nýtist fyrir t.d. skrifborð/vinnupláss.
Hjónaherbegi: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til austurs. Útgengi á svalir sem snúa inn í bakgarð hússins.
Svefnherbergi II: Mað harðparketi á gólfi og gluggum til austurs.
Svefnherbergi III: Með harðparketi á gólfi og gluggum til vesturs/norðurs.
Baðherbergi: Var endurnýja á smekklegan máta fyrir u.þ.b. 3-4 árum síðan. 

Rishæð: Er rúmgóð og mjög björt. Nýtt í dag sem eitt opið rými/svefnherbergi. Er teiknað sem tvö barnaherbergi og einfalt væri að breyta rýminu aftur þannig. Þakgluggar með nýlegu gleri og gluggar til norðurs.

Frábær staðsetning á fjölskylduvænum stað þar sem leikskólinn Hlíðarberg og Setbergsskóli eru í göngufjarlægð. Stutt er í íþróttasvæði FH og golfvöll (Setbergsvöll). Stutt í verslun og þjónustu og göngu- og hjólaleiðir við fallega náttúruna allt í kring, t.d. Urriðavatn, Setbergshlíð og allt að Hvaleyrarvatni og Heiðmörk.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Stuðlaberg 94

221 Hafnarfjörður
TegundRað-/parhúsStærð175,9 m²Herbergi6Svefnherb.4Baðherb.2
129.900.000 kr.738 þ./m²
Byggingarár1988InngangurMargir inngangarBílskúrJáFasteignanúmerF2079587Fasteignamat123.750.000 kr.Brunabótamat104.550.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 49 myndir

Upp ↑