fasteignasölur.is
Tjarnarlundur 7b
Opið hús 13. okt. kl. 16:15–16:45
1 af 15

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur  466-1600

Tjarnarlundur 7b - Snyrtileg og björt 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í góðu fjölbýlishúsi - Stærð 85,6 m², þar af er geymsla á jarðhæð 4,3 m²

**Góð fyrstu kaup**


Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og sér geymslu á jarðhæð. 

Forstofa er með flísum á gólfi og opnu fatahengi.
Eldhús er með flísum á gólfi, góðri innréttingu og flísum á milli skápa. Þar er einnig ísskápur og uppþvottavél sem geta fylgt með við sölu eignar. 
Stofa og eldhús eru í opnu rými með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt á rúmgóðar svalir með frábæru útsýni.
Svefnherbergin eru tvö, bæði eru með parket á gólfi og góður fataskápur er í öðru þeirra.
Á baðherbergi er nýleg innrétting undir vask, flísar á gólfi og í kringum baðkar, sem er með sturtutækjum. Þvottaaðstaða er inni á baðherbergi, þar er tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sér geymsla, 4,3 m², er á jarðhæð. Þar eru hillur.

Annað:
- Húsið var málað að utan og múrviðgert sumarið 2021.
- Skipt hefur verið um útihurðar í sameign.
- Vel staðsett eign. Stutt er í skóla, leikskóla og KA-heimilið. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Tjarnarlundur 7b

600 Akureyri
TegundFjölbýlishúsStærð85,6 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
48.500.000 kr.567 þ./m²
Byggingarár1973InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2151177Fasteignamat44.850.000 kr.Brunabótamat39.250.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 15 myndir

Upp ↑