fasteignasölur.is
Maltakur 7
1 af 26

Um eignina

Erling Proppé & REMAX kynna: Fallega, bjarta og vel skipulagða endaíbúð á fyrstu hæð á vinsælli staðsetningu í Garðabæ. 

Seljendur eru fjölskylda í leit að stærri 5 herbergja eign í nágrenni við Hofsstaðaskóla og koma því skipti á slíkri eign vel til greina.


Björt og rúmgóð þriggja herbergja endaíbúð á fyrstu hæð með stórum yfirbyggðum suðursvölum. Vel staðsett lágreist tveggja hæða fjölbýlishús með sérinngangi í Akralandi. Lyfta er í húsinu, íbúðinni fylgir sérstæði í lokaðri bílageymslu, stór geymsla (25,3fm) og sameiginleg vagna-/hjólageymsla.

Eignin skiptist í: forstofu, eldhús, borðstofu, stofu, tvö svefnherbergi, 2 baðherbergi, fataherbergi og yfirbyggðar svalir. Inn af hjónaherberginu er annað baðherbergið með sturtu og fataherbergi. Stutt er út á stofnbrautir, verslun, bakarí, leikskóla, skóla og fjölbrautaskóla. Dásamlegar gönguleiðir í kring.

Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin 158 fm og þar af 25,3 fm geymsla í sameign. Svalir eru með svalalokun og eru 18,5 fm (brúttó).

Nánari lýsing:
Forstofa: gengið er inn um sérinngang. Endaíbúð og er enginn umgangur fyrir framan íbúðina. Þrefaldur fataskápur og flísalagt gólf.
Eldhús: Innrétting á einum vegg sem nær upp í loft, ofn í vinnuhæð, eyja með spanhelluborði. Parket á gólfi.
Borðstofa: framan við eyjuna er rúmgóð borðstofa með stórum suður glugga.
Stofa: björt og rúmgóð stofa í opnu rými með eldhúsi og borðstofu, parket á gólfi. Gengið er út frá stofu á stórar sólríkar suðursvalir með glerlokun (18,5fm).
Baðherbergi 1: aðal baðherbergið er í alrými. Flísalagt í hólf og gólf. Baðkar og upphengt salerni. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og vinnuvaskur. Mikið skápapláss, stór spegill og gott vinnuborð. Hiti í gólfi.
Hjónasvíta: (svefnherbergi, baðherbergi og fataherbergi/skrifstofa) hjónaherbergið er sérlega rúmgott, stór gluggi og parket á gólfi. Inn af hjónasvítu er baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf. Sturta, upphengt salerni, opnanlegur gluggi og hiti í gólfi. Fataherbergið er í dag aðeins nýtt að hluta sem slíkt og að hluta sem skiptiaðstaða/skrifstofa. Hægt er að setja upp fleiri skápa og stækka fataherbergi eða setja upp snyrtiaðstöðu. Parket er á gólfi.
Svefnherbergi 2: stórt svefnherbergi með fjórföldum loftháum fataskáp. Parket á gólfi.
Geymsla: sér geymsla með glugga í sameign með tvöfaldri hurð, innangeng úr bílakjallara, 25,3fm. Nýtt í dag að hluta til sem líkamsræktaraðstaða.
Bílakjallari: merkt stæði á móti geymslu. Búið er að draga rafmagn í stæði fyrir hleðslustöð.
Bílaþvottaaðstaða: er í bílakjallara
Hjóla og vagnageymslu: er að finna í sameign. 

Falleg og vel skipulögð íbúð í rólegu hverfi.

Allar nánari upplýsingar:
Erling Proppé lgf. sími 690-1300 eða erling@remax.is


Kostnaður kaupanda vegna kaupa:  Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga  er  0,8%  og lögaðila  1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum,  oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. REMAX bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

 

Maltakur 7

210 Garðabær
TegundFjölbýlishúsStærð158 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.2
134.900.000 kr.854 þ./m²
Byggingarár2008InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2310780Fasteignamat119.800.000 kr.Brunabótamat91.290.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 26 myndir

Upp ↑