fasteignasölur.is
Túngata 25
1 af 35

Um eignina

FS fasteignir – 571-9992

Túngata 25, 610 Grenivík
Um er að ræða flott og mikið endurnýjað 140 m2, 6 herbergja einbýlishús á einni hæð með 34,4 m2 bílskúr á Grenivík.

Húsið skiptist í forstofu, eldhús, þvottahús, stofu, sólpall/sólastofa, gang, búr, geymsla, fimm svefnherbergi, baðherbergi og bílskúr.

Nánari lýsing:
Forstofa: 
er með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús: þar er harðparket á gólfi, falleg sérsmíðuð viðarinnrétting með örbylgju- og bakarofn í vinnuhæð, við útvegg er sérsmíðuð hvít innrétting og falleg borðplata með marmara útliti og vínkælir.
Þvottahús: er inn af eldhúsi, þar eru ljósar flísar á gólfi, hvít innrétting með stæði fyrir þvottavél og góðu skápaplássi, þaðan er útgengt í vestur á steypta stétt.
Stofa: er mjög rúmgóð, þar er harðparket á gólfi og stórir gluggar til suðurs, út frá stofu er gengið út á sólpall til suðurs.
Sólpallur/sólstofa: er út frá stofu, sólpallurinn er steyptur og er um 130 m2, sólskáli er yfir hluta hans og er um 28 m2, þar eru plast flísar á gólfi. Búið er að leggja hitalagnir undir pall en ekki búið að tengja.
Gangur: er með harðparketi á gólfi.
Búr: er inn af ganginum, þar er harðparket á gólfi og gluggi til norðurs.
Herbergi: er við hlið búrsins, þar er harðparket á gólfi og gluggi til norðurs, á teikningu merkt sem geymsla.
Svefnherbergi: þar er harðparket á gólfi, fataskápur og gluggi til austurs.
Baðherbergi: er með flísum á gólfi og veggjum, hvít innrétting með grárri borðplötu, upphengt salerni, sturta og baðkar.
Svefnherbergi: þar er harðparket á gólfi, fataskápur og gluggi til austurs.
Hjónaherbergi: er með harðparketi á gólfi, góðum fataskáp og glugga til suðurs, hjónaherbergið er um 11 m2 að stærð.
Svefnherbergi: þar er harðparket á gólfi, fataskápur og gluggi til vesturs.
Bílskúr: er skv. HMS 34,4 m2 að stærð, þar er steypt gólf og rafdrifin innkeyrsluhurð.

Annað:
- Baðherbergi endurnýjað 2011.
- Húsið var að mestu endurnýjað árið 2022:
   - Skipt um allt gólfefni fyrir utan baðherbergi.
   - Allt rafmagn endurnýjað.
   - Skipt um eldhús innréttingar.
   - Skipt um allar innihurðir.
   - Skipt um alla glugga og gler nema í stofu (þar átti að setja rennihurð sem er til og fylgir með eigninni).
   - Loft í stofu og eldhúsi tekið niður, skipt um alla einangrun og loftaklæðningu, innfeld lýsing sett upp og lofthæð aukin.
   - Ný tæki og lagnir í eldhúsi.
- Búið að endurnýja innréttingar hússins.
- Gólfhiti er í öllum gólfum, sólpall og stétt umhverfis húsið.
- Stórt steypt bílastæði er fyrir framan húsið.

Nánari upplýsingar í síma 571-9992 eða fsfasteignir@fsfasteignir.is

Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FS fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
 
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

FS fasteignir ehf. - Glerárgata 36, 3. hæð - 571-9992 - www.fsfasteignir.is
Friðrik Sigþórsson, löggiltur fasteignasali, s: 694-4220, fridrik@fsfasteignir.is
Svala Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 663-5260, svala@fsfasteignir.is
Sigurpáll Gunnarsson, nemi til löggildingar fasteignasala, s: 618-6126, sigurpall@fsfasteignir.is

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá verðmat og ráðgjöf.
Fylgstu með nýjustu eignunum til sölu hjá okkur á facebook og instagram.

Túngata 25

610 Grenivík
TegundEinbýlishúsStærð174,4 m²Herbergi6Svefnherb.4Baðherb.1
98.800.000 kr.567 þ./m²
Byggingarár1980InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2160995Fasteignamat53.900.000 kr.Brunabótamat96.650.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGlerárgata 36 3 hæð, 600 AkureyriSími571-9992

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 35 myndir

Upp ↑