Um eignina
Fyrirtækjasala Ísands - ATV (s. 517 3500 | atveignir.is) kynnir :
Til leigu glæsilegt um 130 m2 skrifstofurými á eftirsóttum stað í Borgartúni. Aðgangsstýrð bílastæði.Húsnæðið telst um 130 fm að stærð (notarými leigutaka), og skiptist í móttöku-gang, tvær skrifstofur, eldhús- og kaffihorn innaf fundarherbergi, stórt opið vinnurými og svalir til suðurs. Aðgengi er að sameiginlegum salernum fyrir starfsfólk. Leigutaki hefur afnot af aðgangsstýrðum bílastæðum (hlið).
Opið vinnurýmið, horn-rymi, er með ljósu parketi á gólfum, og er rýmið með glugga á tvo vegu.
Gangur sem tengir öll rýmin, innangengur úr sameign/lyftum, sem hægt er að nýta sem setu-biðrými, teppalagður, aðgengisstýring með kóða.
Tvær stakar skrifstofur, (var áður eitt fundarherbergi en stúkað niður), og báðar með útgang útá svalir, gólf eru teppalögð.
Í eldhúshlutanum er góð aðstaða til að athafna sig, vaskur, og uppþvottavél og tengi fyrir kaffivél, og önnur raftæki sem þurfa þykir.
Bílastæði fyrir starfsm. fylgja hinu leigða á aðgangsstýrðum (hlið) bílastæðum - mikill kostur á svæðinu. Aðgengi að aðganngsstýrðum bílastæðum er innifalið í leigugjaldi.
Sameign er glæsileg í alla staði, veitingastaðir og kaffiaðstaða er í lobbýi, tvær lyftur húsinu, ljósleiðari, og gott aðgengi fyrir viðskiptavini að bílastæðum.
Mathöll í næsta húsi, auk þess sem góðar tengingar við helstu stofnæðar höfuðborgarsvæðisins. Öll aðstaða og aðbúnaður eins best verður á kosið.
Til að bóka skoðun hafið samband við Björgvin í s. 773-4500, eða senda línu á netfangið bjorgvin@atv.is (Vinsamlega hafið nafn, síma og fyrirtæki í póstinum).
Nánari upplýsingar: https://atveignir.is/atvinnuhusnaedi-til-leigu/skrifstofuhusnaedi/borgartun-skrifstofur-590
---------------------------------
Fyrirtækjasala Íslands - ATV, Síðumúla 31, 108 Reykjavík, (+354) 517 3500
Óskar Mikaelsson - lg. fasteigna- fyrirtækja- og skipasali - s. 773 4700 - oskar@atveignir.is
Björgvin Ó. Óskarsson - rekstrar- og kerfisfr., lg.lm., lg.esky. - s. 773 4500 - bjorgvin@atv.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasali bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
· Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
· Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
· Þjónustugjald eða umsýslugjöld til fasteignasölu er skv. gjaldskrá.
- Önnur þjónusta en tilgreind er sérstaklega í þjónustusamningi milli kaupanda og fasteignasala skal greitt skv. tímagjaldi kr. 24.500,- /klst m/vsk, enda unnið með samþykki og vitund sem og í þágu seljanda og/eða kaupanda.
Borgartún 25
Staðsetning
Allar 10 myndir
Upp ↑








