Um eignina
Fyrirtækjasala Ísands - ATV (s. 517 3500 | atveignir.is) kynnir :
Laust nú þegar! Glæsilegt skrifstofuhúsnæði til leigu á efstu hæð (6. hæð) við Hlíðasmára 6 í Kópavogi með frábæru útsýni.Um 160 m² samtals með hlutdeild í sameign og samnýttum rýmum. Sér inngangur frá stigagangi og lyftu.
Rýmið skiptist í þrjár skrifstofur/vinnurými með aðgengi að eldhúsi og fundarherbergi. Einni skrifstofu er auðvelt að skipta í tvær sjálfstæðar einingar með eigin hurðum. Kerfis-glerveggir með sandblásnum filmum, kerfisloft og lagnastokkar í öllum rýmum. Stóra skrifstofan hefur tvær lausar tengistrýtur. Glertöflur (risstöflur) á vegg og lagnastokkar (rafm./cat5) í öllum rýmum. Hlutdeild í glæsilegu fundarherbergi með fjarfundarbúnaði, flatskjá og glertöflu, auk kaffistofu/eldhúss. Gangur með náttúrusteini, veggir með dökkri viðarklæðningu og gólf með gegnheilum hnotuparket. Ljósleiðari og miðlægur kerfisskápur í húsinu.
Rýmið hentar sérfræðingum á ýmsum sviðum. Sveigjanlegar útfærslur mögulegar, t.d. hluti rýmisins eða án hornskrifstofu.
Vinsamlega hafið samband við Björgvin í síma 773-4500 eða á bjorgvin@atv.is til að bóka skoðun.
Nánari upplýsingar: https://atveignir.is/atvinnuhusnaedi-til-leigu/skrifstofuhusnaedi/hlidasmari-573
---
Vacant! Premium office space for lease on the top floor (6th) at Hlíðasmári 6, Kópavogur with excellent views.
Gross space, approx. 160 m² incl. common areas. Private entrance from stairwell/elevator.
Currently three offices/workspaces with access to kitchen and meeting room. One office can be split into two self-contained units. Modern system glass partitions with sandblasted film, suspended ceilings and utility ducts throughout. Large office has freestanding connection poles; all spaces include electrical & Cat5 ducts plus glass whiteboards. Share of high-end meeting room with video conferencing, flat screen and glass whiteboard, plus coffee kitchen/lounge. Hallway with natural stone floors, elegant dark wood cladding and solid walnut parquet. Fiber optic and central IT cabinet in the building. Ideal for professionals.
Flexible layouts possible (e.g. partial space or omit corner office).
Please contact Björgvin on (+354) 773-4500 or bjorgvin@atv.is to book a viewing.
---
---------------------------------
Fyrirtækjasala Íslands - ATV, Síðumúla 31, 108 Reykjavík, (+354) 517 3500
Óskar Mikaelsson - lg. fasteigna- fyrirtækja- og skipasali - s. 773 4700 - oskar@atveignir.is
Björgvin Ó. Óskarsson - rekstrar- og kerfisfr., lg.lm., lg.esky. - s. 773 4500 - bjorgvin@atv.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasali bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
· Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
· Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
· Þjónustugjald eða umsýslugjöld til fasteignasölu er skv. gjaldskrá.
- Önnur þjónusta en tilgreind er sérstaklega í þjónustusamningi milli kaupanda og fasteignasala skal greitt skv. tímagjaldi kr. 24.500,- /klst m/vsk, enda unnið með samþykki og vitund sem og í þágu seljanda og/eða kaupanda.
Hlíðasmári 6
Staðsetning
Allar 20 myndir
Upp ↑


















