fasteignasölur.is
Hólavegur 40
1 af 21

Um eignina

Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina við Hólaveg 40, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarréttindum. 
Vel skipulögð, þriggja herbergja íbúð á neðri hæð til vinstri í steyptu fjórbýlishúsi ásamt bílskúr, byggt árið 1973. Birt stærð íbúðarinnar er 72,2 fm. og bílskúrs 38,8 fm. 
Leigulóð hússins er 646 fm. 
Góð staðsetning. Stutt er í skóla, leiksskóla, íþróttasvæði og íþróttahús, sundlaug, verslun o.fl.


Íbúðin skiptist í eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, hol og baðherbergi. Sameign er teppalögð.
Komið er inn í parketlagt hol. Þar við eru tvö svefnherbergi og baðberbergi.
Svefnherbergin er bæði parketlögð og og með fataskápum. 
Flísalagt baðherbergi með sturtu, handklæðaofn. Hvít innrétting. Tengi fyrir þvottavél er inn á baðherberginu. Hillur á vegg. 
Gangur frá holi að eldhúsi og stofu. Þar er fatahengi og efri skápar.
Eldhús er með hvítri innréttingu og dökkri borðplötu.
Stofa er parketlögð, þaðan er gengið út í garð til vesturs. Steypt verönd, sem búið er að leggja plastflísar á, er í garði vestan við húsið sem er séreign íbúðarinna en annars er lóð sameiginleg.
Bílskúr - hellulagt er fyrir framan bílskúr. Skipt var um þak á bílskúr og glugga árið 2019. Einnig var skipt um neysluvatnslagnir og fráveitu í bílskúr sama ár. Við þá framkvæmd var nýr stofn lagður með húsinu í innkeyrslu og gert ráð fyrir að hægt sé að tengja frá eldhúsi og baðherbergi þar inná. Ofnar voru endurnýjaðir. Rafmagn hefur einnig verið endurnýjað. 
Rafmagnsopnun er á bílskúrshurð. Vaskur er í bílskúr. Hleðslustöð fylgir ekki.

Búið er að skipta um glugga á suðurhlið hússins, en það var gert árið 2021.
Skipt var um gler í stofuglugga og listar endurnýjaðir.
Búið er að endurnýja rafmagn að hluta, og skipt hefur verið um alla rofa og tengla.
Nýjir ofnar eru í íbúðinni.
Parket og innihurðir eru frá 2021.
Búið er að endurnýja þakjárn og pappa á húsinu.

Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali

Hólavegur 40

550 Sauðárkrókur
TegundFjölbýlishúsStærð111 m²Herbergi3Svefnherb.1Baðherb.1
46.200.000 kr.416 þ./m²
Byggingarár1973InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2131828Fasteignamat39.700.000 kr.Brunabótamat52.250.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSæmundargata 1, 550Sími453-5900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 21 myndir

Upp ↑