Opið hús 11. okt. kl. 13:30–14:00
1 af 17Um eignina
Guðný Ösp, lgf., s. 665-8909 og Fasteignasalan TORG kynnir glæsilegt og einstaklega vandað raðhús við Vorbraut 55 í suðurhlíð Hnoðraholts í Garðabæ.
Um er að ræða fimm raðhús á tveimur hæðum, hönnuð af FORMER arkitektum. Húsin eru hönnuð með sólarátt og birtuskilyrði í huga og skipulagið unnið út frá einstakri staðsetningu í suðurhlíð Hnoðraholts svo að íbúar allra húsanna geti notið stórbrotins útsýnis yfir golfvöll og náttúruparadísina Heiðmörk.
Lagt var upp með tímalausa hönnun og samspil við náttúru þar sem úthugsað innanhússskipulag, skýrar línur og gott flæði er einkennandi. Aðalinngangur er staðsettur í tengslum við forgarð sem er með síðdegis- og kvöldsól. Skipulag húsanna innan lóða tryggir næði en jafnframt góða tengingu milli húsa og útisvæða. Forgarður og stórar svalir, gefa húsinu einstaka ásýnd og skapa gott flæði milli byggingar og náttúru.
Húsin skilast fullfrágengin að utan og innan (byggingarstig BS 4, áður 7) samkvæmt skilalýsingu, með vönduðum innréttingum frá Ballingslöv, glæsilegum eldhústækjum frá Siemens, fullbúnum baðherbergjum, innihurðum, skápum og gólfefnum í votrýmum og bílskúr. Áætluð afhending er vor/sumar 2027.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðný Ösp, löggiltur fasteignasali í síma 665-8909 eða með tölvupósti gudny@fstorg.is eða Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 863-8813 eða með tölvupósti á elka@fstorg.is
Sjá grunnteikningu og nánara skipulag inn á heimasíðu verkefnisins www.vorbraut53-61.is
Heimasíða verkefnisins: VORBRAUT53-61.IS
Nánari lýsing
Við Vorbraut 51-63, í suðurhlíð Hnoðraholts í Garðabæ, rísa fimm einstaklega glæsileg raðhús hönnuð af FORMER arkitektum en lagt var upp með tímalausa hönnun, samspil við náttúru og hágæða efni þar sem ekkert var til sparað til þess að hafa húsin sem glæsilegust. Húsin voru sérstaklega hönnuð með sólarátt og birtuskilyrði í huga og skipulagið unnið út frá einstakri staðsetningu í suðurhlíð Hnoðraholts svo að íbúar allra húsanna geti notið stórbrotins útsýnis yfir golfvöll, Vífilsstaðavatn og náttúruparadísina Heiðmörk.
Húsin skilast fullfrágengin að utan og innan (byggingarstig BS 4, áður 7) og lóðum er skilað frágengnum að framanverðu en grófjöfnuðum að öðru leyti, samkvæmt skilalýsingu. Hellulögn með snjóbræðslu er á forgarði, bílaplani og gangvegi að húsinu ásamt aukabílastæði með grassteini (án snjóbræðslu).
Húsin eru byggð úr vottuðum forsteyptum einingum frá BM Vallá með einangrun milli steinsteypulaga. Veggir utanhúss eru með sléttri steypuáferð og málaðir en klæddir hitameðhöndluðu timbri að hluta. Þakplötur eru úr forsteyptum filigranplötum með ásteypulagi og ofan á þakplötur kemur svokallað viðsnúið þakkerfi. Það samanstendur meðal annars af tveimur lögum af asfaltdúk sem er heillímdur á þakfleti með eldsuðu og plasteinangrun sem er fergjuð með tveimur lögum af úthagatorfi. Gluggar eru úr timbri með álklæðningu að utanverðu að undanskildum svalahurðum sem eru rennihurðir úr áli. Útidyrahurðir eru úr stáli og bílskúrshurðir eru innfelldar og timburklæddar. Allt gler er sólvarnargler.
Hnoðraholt er nýtt og vandað íbúðarhverfi með einstaka náttúrufegurð, góðum samgöngutengingum og víðáttumiklu útsýni. Stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og alla helstu þjónustu Garðabæjar.
Einstök útivistarsvæði eru í næsta nágrenni, þar á meðal Heiðmörk, Vífilsstaðavatn og golfvellir GKG. Fjölnota íþróttahúsið Miðgarður er einnig staðsett í hverfinu og býður upp á fjölbreytta íþrótta- og heilsutengda starfsemi.
Vorbraut 53–61 sameinar fyrsta flokks arkitektúr, glæsilega innanhússhönnun, stórbrotið útsýni og einstaka staðsetningu. Hér er um að ræða vönduð og nútímaleg fjölskylduheimili þar sem sérstaklega hefur verið hugað að birtu, rýmisnýtingu, efnisvali og tengingu við náttúruna.
Áætluð afhending er vor/sumar 2027.

Vorbraut 55
210 Garðabær
TegundRað-/parhúsStærð264,6 m²Herbergi6Svefnherb.4Baðherb.3
244.900.000 kr.926 þ./m²
InngangurMargir inngangarBílskúrJáFasteignanúmerF2530076Fasteignamat116.700.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 17 myndir
Upp ↑