Um eignina
Eggert löggiltur fasteignasali verður á staðnum.
STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Bjarta og vel skipulagða 91,7 fm 3ja herbergja íbúð á annarri hæð í snyrtilegu fjölbýli í Skógarás 15. Þvottahús innan íbúðar. Fallegt útsýni yfir Rauðavatn.
Ekki er langt síðan að járn og pappi á þaki var endurnýjað ásamt því að húsið var múrviðgert og málað.
Stutt er í alla helstu þjónustu eins og leik- og grunnskóla, íþróttastarf Fylkis, sundlaug, náttúruparadísin Elliðarárdalurinn, verslanir, bakarí og læknaþjónusta er skammt frá.
Íbúðin er 82,1 fm (merkt 02-0301) og geymsla er 9,6 fm (merkt 02-0105) samtals er eignin 91,7 fm skv skráningu Þjóðskrá Íslands.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is
Forstofa er með flísum á gólfi og upphengi.
Stofa er með parket á gólfi og þaðan er útgengt á stórar suðvestur svalir.
Eldhús er með flísum á gólfi ásamt snyrtilegri viðarinnréttingu og flísar á milli efri og neðri skápa.
Svefnherbergin eru tvö og eru rúmgóð með parket á gólfum og skápar í aðalsvefnherbergi og gott útsýni yfir Rauðavatn úr báðum svefnherbergjum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi, sturtuklefi, baðkar, upphengt wc, skápar undir vask og handklæðaofn.
Þvottahús er innan íbúðar inn af eldhúsi, hillur og snúrur til þess að hengja upp.
Geymsla er rúmgóð í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Skógarás 15
Staðsetning
Allar 27 myndir
Upp ↑

























