Opið hús 15. okt. kl. 17:00–18:00
1 af 41Um eignina
Eignamiðlun kynnir:
Rúmgóð og mikið endurnýjuð 3ja herbergja 89 m2 íbúð á annarri hæð í litlu steinsteyptu fjölbýlishúsi á frábærum stað í Rimahverfinu í Grafarvogi. Sérinngangur af svalagangi og sérmerkt bílastæði er við húsið. Frá íbúðinni er stutt í alla helstu þjónustu en leikskólar, grunnskóli og framhaldsskóli eru í göngufæri. Þá er Spöngin, með verslunum, veitingastöðum og Borgarbókasafni einnig í göngufæri við íbúðina. Falleg stofa með svölum í suðaustur, hálf opið eldhús, rúmgott hjónaherbergi og barnaherbergi, flísalagt baðherbergi með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, rúmgóð forstofa og gangur innaf þarf sem er vinnuaðstaða. Eignin er skráð í fasteignamati 89 fermetrar sem skiptist í 84 fermetra íbúð merkt 01-0202 og 5 fermetra geymsla á jarðhæð merkt 01-0111. Nánari upplýsingar veita Rögnvaldur Örn Jónsson, lgfs.í síma 660-3452, rognvaldur@eignamidlun.is eða Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs. í síma 663-2508, olafur@eignamidlun.isAðkoman að húsinu liggur um rúmgóðar götur með nægu rými á milli húsa og stórum grónum lóðum þar sem eru leiksvæði. Merkt bílastæði eru framan við húsið, næg bílastæði í næsta nágrenni.
Sérinngangur er í íbúðina af svalagangi í norðvestur. Forstofa er með fataskáp og ljósum steinflísum á gólfi. Innaf forstofu er lítill gangur eða hol þar sem eigendur hafa útbúið notalega vinnuaðstöðu. Opið er úr þessu rými inn í miðrými íbúðarinnar þar sem stofa er til vinstri og eldhús til hægri.
Stofan er rúmgóð og björt með stórum gluggum að svölum og nægu rými fyrir bæði borðstofu og setustofu en svalir snúa til suðausturs. Eldhús er hálf opið með hvítri innréttingu með gráum borðplötum, spanhelluborði með viftu yfir, bakaraofni, plássi fyrir uppþvottavél. Gott vinnupláss og skemmtilegt morgunverðarborð við glugga.
Svefnherbergi I er mjög rúmgott hjónaherbergi með stórum innbyggðum fataskáp, herbergi II bjart og rúmgott.
Baðherbergi er flísalagt, með sturtuklefa með djúpum botni og vegghengdu salerni. Innrétting er undir vaski og innrétting fyrir þvottavél og þurrkara með góðu vinnuborði ásamt geymsluplássi sem nær upp í loft.
Gólfefni voru endurnýjuð 2023, en harðparket er á öllum meginrýmum og flísar á baði og forstofu, keypt hjá Birgisson.
Í sameign er sérgeymsla og sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Lóðin er sameiginleg með grasi og trjám, ásamt sameiginlegum sólpalli við húsið.
Vel skipulögð og rúmgóð íbúð, frábær fyrstu kaup. Vel staðsett fyrir barnafólk.
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupandendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Klukkurimi 57
112 Reykjavík · Grafarvogur
TegundFjölbýlishúsStærð89 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
68.500.000 kr.770 þ./m²
Byggingarár1993InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2039715Fasteignamat64.850.000 kr.Brunabótamat44.500.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 41 myndir
Upp ↑







































