fasteignasölur.is
Álfheimar 62
Opið hús 13. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 26

Um eignina

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Björt og vel skipulögð 4-5 herbergja endaíbúð í góðu fjölbýlishúsi við Álfheima 62

* 3 svefnherbergi og tvöföld stofa
* Viðarparket á gólfi
* Hleðslustöð fyrir rafbíla er á sameiginlegu bílastæði.
* Vinsæl og fjölskylduvæn staðsetning miðsvæðis í Laugardalnum
* Hús teiknað eftir Kjartan Sveinsson og Ásmund Ólasson


Viðhald hússins síðastliðin ár tiltelur ma. :
2020 -2021 voru múrviðgerðir og málun utan á húsinu, endurnýjað gler og gluggar eftir þörfum, þak yfirfarið, endurnýjaðar þakrennur.
Austurgafl hússins var klæddur með áli fyrir einhverjum árum síðan.

Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð eignar samkv. HMS er 103,40 m2.

Eignin skiptist í hol, stofu / borðstofu, svalir, eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi og sérgeymslu.
Hol er með parket á gólfi og fataskáp.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með parket á gólfi. Útgengt út á svalir til suðvesturs. Fallegt útsýni. 
Eldhús er flísalagt með L-laga innréttingu, helluborð, bakarofn, vifta og tengi fyrir uppþvottavél.
Svefnherbergin eru þrjú öll með fataskápum og parket á gólfi.
Baðerbergi er flísalagt með upphengdu wc, sturtuklefa, innréttingu með handlaug, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla er í sameign skráð 7,3 m2
Í sameign er einnig hjóla / vagnageymsla og þvottahús.

Vel staðsett eign miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í skóla, verslanir, almenningssamgöngur og alla helstu þjónustu.
Örstutt í verslunarkjarnann Glæsibæ þar sem eru margar verslanir, matsölustaðir, bakarí og margs konar þjónusta ásamt heilsugæslu, líkamsræktarstöð, apóteki og læknaþjónustu. Svo er einnig stutt í Skeifuna með alla sína þjónustu og verslunum. Fjölskyldu og húsdýragarðurinn er í göngufæri ásamt íþróttaraðstöðunni í Laugardalnum.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Álfheimar 62

104 Reykjavík · Vogar
TegundFjölbýlishúsStærð103,4 m²Herbergi5Svefnherb.3Baðherb.1
77.900.000 kr.753 þ./m²
Byggingarár1960InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2021734Fasteignamat74.550.000 kr.Brunabótamat49.750.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangEngjateigur 3, 105 RekjavíkSímiPálsson

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 26 myndir

Upp ↑