fasteignasölur.is
Rúgakur 1
Opið hús 14. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 38

Um eignina

Nýtt á skrá! Rúgakur í Garðabæ - Glæsileg, vel skipulögð og björt 3ja herb. íbúð með hjónasvítu (fataherbergi og baðherbergi), stórum svölum til suðvesturs og stórri geymslu með vængjahurð við bílastæði í bílakjallara.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali, kynnir glæsilega og vel skipulagða 3ja herbergja 159,4 fermetra íbúð á 2. hæð (efstu) í litlu fjölbýli við Rúgakur 1 í Garðabæ. Um er að ræða frábærlega staðsetta íbúð í Akralandinu í Garðabæ í rólegum botnlanga. Um er að ræða horníbúð sem stendur í miklu næði frá öðrum húsum og er mjög víðsýnnt frá íbúðinni yfir Garðabæinn. Íbúðin er með sérinngangi og stórum svölum til suðvesturs frá stofu. Stórt alrými sem samanstendur af eldhúsi, setustofu og borðstofu. Tvö baðherbergi eru í íbúðinni. Svefnherbergi eru rúmgóð og er hjónaherbergi (hjónasvíta) með sér fataherbergi og baðherbergi. Flott þvottaaðstaða er innan íbúðar. Stór geymsla (með tvöfaldri vængjahurð og glugga) er staðsett á móti bílastæði í lokuðum bílakjallara hússins.

Íbúðin skiptist í forstofu, hjónasvítu (með baðherbergi I og fataherbergi), stórt alrými sem rúmar eldhús, borðstofu og setustofu, baðherbergi II og þvottaaðstöðu. Stórar skjólgóðar svalir til suðvesturs með fallegu útsýni.

Húsið er byggt árið 2008, álklætt og viðhaldslítið, með fallega frágenginni lóð. Hellulögð stétt og malbikuð bílastæði fyrir framan hús. 


Um er að ræða afar glæsilega eign á eftirsóttum stað í Garðabæ þar sem stutt er í leikskóla (Akrar), grunnskóla (Hofstaðaskóla), verslun og aðra þjónustu (m.a. matvöruverslun og bakarí). Staðsetning er afar barnvæn þar sem leikvellir eru í næsta nágrenni ásamt fótbolta- og körfuboltavelli. Íbúðin er líklega ein af betur staðsettum íbúðum í hverfinu með fallegu útsýni yfir Garðabæinn.

Lýsing eignar:
Forstofa: Er rúmgóð, með flísum á gólfi og skápum.
Gangur/hol: Með harðparketi á gólfi.
Alrými samanstendur af stofu og eldhúsi. Stofa er rúmgóð og rúmar mjög vel setustofu og borðstofu. 
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu með miklu skápaplássi og stórri eyju með kvartz steini á borðum og undirfelldum vaski. Tvöfaldur Samsung kæliskápur, stál bakaraofn, keramik helluborð, stál háfur og innbyggð uppþvottavél.
Borðstofa: Með harðparketi á gólfi og gluggum til suðurs. Opin við eldhús.
Setustofa: Með harðparketi á gólfi og gluggum til suðurs og vesturs. Útgengi á svalir frá stofu.
Svalir: Eru stórar og skjólgóðar og snúa til suðvesturs. Fallegt og víðsýnt útsýni er frá stofum og svölum.
Hjónasvíta: Er rúmgóð og með harðparketi á gólfi. Gluggar til vesturs og norðurs. Fataherbergi og baðherbergi I er innan hjónasvítu.
Fataherbergi: Með harðparketi á gólfi, miklu skápaplássi og glugga til vesturs.
Baðherbergi I: Með er staðsett inn af hjónaherbergi. Flísar á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum, falleg innrétting við vask með kvartz steini á borðum og sturta. Upphengt salerni og gluggi til vesturs.
Svefnherbergi II: Er rúmgott, með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Baðherbergi II: Með flísum á gólfi og veggjum. Falleg innrétting við vask með kvartz steini á borðum. Sturta og upphengt salerni. Gott svæði fyrir þvottavél og þurrkara ásamt vinnuborði.

Bílastæði í bílakjallara: Er vel staðsett í lokuðum bílakjallara með rafhleðslustöð. Þvottaaðstaða er staðsett í bílakjallara.
Sér geymsla: Er stór, með tvöfaldri vængjahurð og vel staðsett á móti bílastæði í bílakjallara. Málað gólf og gluggi.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla: Er staðsett í sameign hússins. 

Húsið að utan: Lítur vel út og virðist vera í góðu ásigkomulagi. 
Lóðin: Er frágengin, vel hirt. Tyrfðar flatir, hellulagðar stéttar og malbikuð sameiginleg bílastæði.

Um er að ræða frábæra eign í þessu vinsæla hverfi í Akralandi. Stutt er í alla verslun og þjónustu, leikskóla, grunnskóla og fjölbrautaskóla. Íþróttasvæði og sundlaug í næsta nágrenni.

Nánari upplýsingar: Heimir Hallgrímsson, lögg. fasteignasali og lögfræðingur / heimir@fastlind.is / 849-0672

Rúgakur 1

210 Garðabær
TegundFjölbýlishúsStærð159,4 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.2
139.900.000 kr.878 þ./m²
Byggingarár2008InngangurSérinngangurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2311357Fasteignamat123.600.000 kr.Brunabótamat97.140.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 38 myndir

Upp ↑