fasteignasölur.is
Sóltún 13
Opið hús 17. okt. kl. 13:00–13:30
1 af 34

Um eignina

Einstaklega falleg  þriggja herbergja íbúð á jarðhæð að Sóltúni 13, Reykjavík, til sölu.
Íbúðin er 109,4 fm, þar af er sérgeymsla í kjallara 4,9 fm.
Eldhús, borðstofa og stofa í opnu rými með útgengi á suðurverönd með sérafnotarétti af lóð. Sérsmíðaðar ljósar eikarinnréttingar frá Brúnás í allri íbúðinni, m.a. hillur í stofu og skrifborðseining við svefnherbergisgang, sem gefur íbúðinni hlýlegt yfirbragð og karakter.
Lýsing í öllum rýmum íbúðarinnar er frá Lumex.
Baðherbergi með glugga, þvottahús innan íbúðar. Gólfefni íbúðarinnar eru náttúruflísar og gegnheilt eikarparket. Sérinngangur og fjöldi bílastæða fyrir framan húsið.
Bílastæði í lokaðri bílageymslu.


Vinsæl staðsetning, fjölbreytt verslun og þjónusta í næsta nágrenni.

 Nánari lýsing:
Stór forstofa með rúmgóðum  skáp, dökkar nátturuflísar á gólfi.
Eldhús, borðstofa og stofa í opnu rými. Ljós eikarinnrétting og stálskúffueining í eldhúsi, granít á eldhúsbekk, efri skápar með möttum glerhurðum sem gefur eldhúsinu létt yfirbragð. Dökkar náttúruflísar flæða frá forstofu yfir í eldhús. Eikarinnréttingar í stofu og borðstofu í sama stíl og eldhús. Eikarparket á gólfum.
Gengið úr stofu út á hellulagða skjólsæla suðurverönd.
Svefnherbergi eru tvö, stærra herbergið með tvöföldum innbyggðum eikarskápum og hillum í stíl og minna herbergið, einnig með innbyggðum eikarskáp. Eikarparket á gólfum.
Baðherbergi, er stórt með glugga, baðkari og rúmgóðum sérhönnuðum sturtuklefa með bogavegg. Skápar og vaskborð í stíl við aðrar innréttingar íbúðarinnar. Dökkar náttúruflísar á gólfi.
Þvottahús, innan íbúðar, vel útbúið, innbyggðir eikarskápar og ljógrá innrétting í stíl við aðrar innréttingar íbúðarinnar.
Sérgeymsla í kjallara hússins.
Sameignleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð við hlið íbúðarinnar.
Bílastæði í lokaðri bílageymslu, hleðslustöð.

Við byggingu hússins var lögð sérstök áhersla á góða hljóðeinangrun milli íbúða og milli hæða. Vandaðar innihurðir sem bæta hljóðvist og fjarstýringar á öllum hurðum sameignar. Sameignin er mjög vel umgengin og hefur fengið gott viðhald í gegnum árin.
Gott rými og vel gróið svæði með trjágróðri á milli húsa.

Einstaklega falleg og vel staðsett íbúð á eftirsóttum stað miðsvæðis í borginni,
vel þess virði að skoða.


Allar frekari upplýsingar veita Sigríður Jónasdóttir löggiltur fasteignasali í síma 661-4141 eða gegnum tölvupóstfangið sigridur@bjarturfasteign.is 

Skoðunarskylda kaupanda
:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: Af kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv., kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Sóltún 13

105 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð109,4 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
95.800.000 kr.876 þ./m²
Byggingarár2000InngangurSameiginlegurBílskúrJáFasteignanúmerF2246448Fasteignamat89.900.000 kr.Brunabótamat77.990.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmára 10, 201Sími661-4141

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑