fasteignasölur.is
Lerkidalur 44
Opið hús 13. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 32

Um eignina

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Lerkidalur 44, birt stærð 104.0 fm. Fallegt og vel skipulagt raðhús á vinsælum stað í Reykjanesbæ

Raðhús á einni hæð í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í Lerkidal. Eignin er björt, vel skipulögð og með góðu flæði milli rýma. Snyrtilegt og vel við haldið raðhús með góðu innra skipulagi, með innbyggðri loftalýsingu og fallegri birtu. Sólpallur í suður, með heitum pott ásamt einangruðum skúr á lóð.

Eignin er staðsett í göngufæri við skóla, leikskóla, sundlaug og framtíðar þróttasvæði. Stutt keyrsla frá Reykjanesbraut að eigninni.

Bókaðu skoðun, ég sýni á þínum tíma!
Nánari upplýsingar veitir: Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is.


Skipulag:
Raðhús á einni hæð, 3 svefnherbergi, Björt og rúmgóð stofa, gott eldhús, Baðherbergi með sturtu og þvottaaðstöðu, Sérgeymsla, Skjólgóð baklóð sem er aflokuð.

Frábær staðsetning í vinsælu hverfi
Nánari lýsing: 
Anddyri: 
Snyrtilegt anddyri með góðu skápaplássi. Flísar á gólfi og gott rými.
Forstofuherbergi: Herbergi hentugt sem barnaherbergi, skrifstofa eða gestaherbergi.
Herbergi II: bjart og snyrtilegt, með skáp.
Stofa og borðstofa: Bjart og rúmgott alrými með gluggum í suður. Rýmið er mjög hlýlegt  með parketi og góðu flæði inn í eldhús. Útgengt er á verönd og garð.
Eldhús: Vel skipulagt eldhús með góðu skápaplássi og borðkrók. Nútímalegt yfirbragð og tenging við stofu. Eldhúsið er bjart og praktískt, innbyggð tæki.
Hjónaherbergi: rúmgott, með góðum skápum.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með sturtu, vaskinnréttingu og glugga. Nútímalegt og vel skipulagt rými sem m.a er aflokuð þvottaaðstaða í skáp ásamt skolvask.
Geymsla: Sérgeymsla innan íbúðar.

Lóð og aðkoma
Góð aðkoma og hellulagt bílastæði við húsið ásamt snjóbræðslu á gönguleið. Skjólgóða lóð með aflokaðri verönd. Heitur pottur með stýringu ásamt nýjum  geymsluskúr, vel frágengnum að innan sem utan, einangruðum með rafmagni. Ljós er í skjólgirðingum.

Samantekt
Lerkidalur 44 er fallegt og vel skipulagt raðhús á frábærum stað í Reykjanesbæ. Eignin hentar vel þeim sem vilja bjarta og snyrtilega íbúð með góðu flæði, 3 svefnherbergjum  í góðri stærð og skjólgóðri lóð, pottur og góður geymsluskúr sem gæti líka verið aðstaða.

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Lerkidalur 44

260 Njarðvík
TegundRað-/parhúsStærð104 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
76.800.000 kr.738 þ./m²
Byggingarár2019InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2504412Fasteignamat73.100.000 kr.Brunabótamat52.500.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnargata 62, 230 ReykjanesbærSími560-5500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 32 myndir

Upp ↑