fasteignasölur.is
Lyngmóar 16
Opið hús 13. okt. kl. 17:30–18:00
1 af 24

Um eignina

LIND fasteignasala og Lára Þyri, löggiltur fasteignasali, kynna bjarta og vel skipulagða þriggja til fjögurra herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) með bílskúr í snyrtilegu fjölbýli við Lyngmóa 16 í Garðabæ. Þrjú svefnherbergi, björt og rúmgóð stofa með glæsilegu útsýni þar sem Arnarnesvogurinn, Bessastaðir og Esjan blasa við. Eignin er skráð 113,8 fm hjá Þjóðskrá Íslands, þar af er íbúð og geymsla 95 fm og bílskúr 18,8 fm. Lyngmóar eru staðsettir miðsvæðis í Garðabæ þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Leikskólinn Bæjarból er handan götunnar og Garðatorg er steinsnar frá. Þar er að finna matvöruverslun, veitingastaði, hárgreiðslustofu, verslanir, apótek og læknastöð svo eitthvað sé nefnt. Flataskóli, Hofstaðaskóli og Fjölbrautaskóli Garðabæjar eru í stuttu göngufæri. 

Forstofa/hol: Flísar á gólfi, fataskápur.  
Eldhús: Flísar á gólfi, eikarinnrétting með dökkri boðplötu. 
Þvottahús er inn af eldhúsi, flísar á gólfi. 
Stofa: Opin og björt með mikilli lofthæð, parketi á gólfi og stórum glugga, fallegt útsýni til vesturs.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, sturta, upphengt salerni, innrétting með handlaug, opnanlegur gluggi.  Baðherbergi þarfnast endurbóta.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, fataskápur.
Svefnherbergi II: Parket á gólfi, fataskápur.
Svefnherbergi III: Flísar á gólfi. Var áður hluti af svölum.
Sérgeymsla (6,1 fm) í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. 
Bílskúr (18,8 fm): Steypt gólf, stæði fyrir framan bílskúr.

ATH: Skipulag er ekki samkvæmt teikningu. Íbúðin er upphaflega teiknuð með tveimur svefnherbergjum en þriðja svefnherbergið var útbúið úr hluta svala sem hafa verið lokaðar af með svalalokun og teknar inn í birtan fermetrafjölda eignarinnar.

Framkvæmdir undanfarið við Lyngmóa 14-16 að sögn seljanda: 
2026 Stigagangur málaður og teppi endurnýjað
2022 Dren endurnýjað frá suðurhlið að norðurhlið
2022 Steypuviðgerðir á göflum hússins
2022 Blátt timbur málað (þar á meðal bílskúrshurðir)
2022 Klæðning tekin af að hluta og rennur yfirfarnar
2022 Svalalokanir yfirfarnar og lagaðar/endurnýjaðar eftir þörfum (voru í lagi í íbúð).

Allar nánari upplýsingar veitir:
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is
 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%  
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.  

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
76.900.000 kr.676 þ./m²
+116,6% á 10 árum
20. september 2016Þinglýstur kaupsamningur
35.500.000 kr.312 þ./m²
+49,2% á 4 árum
23. apríl 2012Fyrsta sala
23.800.000 kr.209 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Lyngmóar 16

210 Garðabær
TegundFjölbýlishúsStærð113,8 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
76.900.000 kr.676 þ./m²
Byggingarár1978InngangurSameiginlegurBílskúrJáFasteignanúmerF2071648Fasteignamat75.000.000 kr.Brunabótamat60.200.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑