Um eignina
Vel skipulögð og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð við Nýbýlaveg 104, Kópavogsbær
Um er að ræða bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á jarðhæð þar sem ráðist hefur verið í fjölmargar endurbætur á undanförnum árum. Íbúðin býður upp á tvö rúmgóð svefnherbergi, notalega stofu með útgengi á hellulagða verönd og endurnýjað eldhús með nýjum innréttingum og heimilistækjum.
Meðal helstu endurbóta eru parket á gólfum, ný eldhúsinnrétting og nýr fataskápur í hjónaherbergi, endurnýjaðar innréttingar á baðherbergi og salerni, nýir ofnar og hitanemar. Þá hefur verið skipt um glugga á mismunandi tímum og þak hússins var endurnýjað árið 2021 ( yfirfarið allt timbur skipt um þak pappa og járn ).
Birtarstærðir skv. Þjóðskrá Íslands. Íbúð er 85,6 fm merkt 010001.
Nánari lýsing
Forstofa og geymsla:
Komið er inn í forstofu og er geymsla staðsett á vinstri hönd, innan íbúðarinnar.
Eldhús:
Eldhúsið hefur verið endurnýjað með nýrri innréttingu og nýjum heimilistækjum. Þar eru helluborð, bakaraofn, örbylgjuofn, uppþvottavél og ísskápur. Borðkrókur er í eldhúsinu.
Stofa og verönd:
Stofan er björt og rúmgóð, með góðu rými fyrir setustofu og borðstofu. Úr stofunni er gengið út á hellulagða verönd sem skapar skemmtilega tengingu milli íbúðar og útisvæðis. Stofugluggar sem snúa í suður voru endurnýjaðir árið 2015.
Svefnherbergi:
Íbúðin er með tvö rúmgóð svefnherbergi. Í hjónaherbergi er nýr fataskápur og gluggar í hjónaherbergi og barnaherbergi voru endurnýjaðir árið 2026.
Baðherbergi:
Baðherbergið er flísalagt og með baðkari, glugga og viðarinnréttingu. Innréttingin hefur verið endurnýjuð.
Gólfefni, hurðir og ofnar:
Nýtt parket hefur verið lagt á gólf íbúðarinnar, að undanskilinni geymslu þar sem er teppi. Inngangshurð íbúðarinnar hefur verið endurnýjuð og er frá Herholz, með eikaráferð. Hurðin er vottuð brunahurð með 30 mínútna brunamótstöðu. Allir ofnar hafa verið endurnýjaðir og eru með nýjum hitanemum.
Sameign og endurbætur á húsi
Í sameign hússins er þvottahús, þurrkherbergi með snúrum, gestasalerni og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Þak hússins var endurnýjað árið 2021. Gluggum sem snúa til austurs var skipt út árið 2019.
Staðsetning
Eignin er vel staðsett með tilliti til almennrar þjónustu og er stutt í skóla, leikskóla og verslanir. Staðsetningin hentar því vel þeim sem vilja hafa helstu þjónustu í næsta nágrenni.
Nýlega endurnýjuð að mörgu leyti, vel skipulögð og með hellulagðri verönd er hér á ferðinni áhugaverð eign fyrir þá sem leita að þriggja herbergja íbúð á góðum stað.
Eignin er laus til afhendingar.
ATH Myndir 1,2,3,4,5 eru innréttaðar með gervigreindarforriti - aðeins húsgögn og skrautmunum hefur verið bætt við.
Nánari upplýsingar og bókun skoðunartíma
Davíð Matthíasson, löggiltur fasteignasali
Aldir fasteignir ehf.
Sími: 898 1713
Netfang: david@aldirfasteignir.is
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.
Nýbýlavegur 104
Staðsetning
Allar 30 myndir
Upp ↑




























