fasteignasölur.is
Freyjubrunnur 23
Opið hús 15. okt. kl. 17:30–18:00
1 af 33

Um eignina

RE/MAX ásamt Guðlaugu Jónu lgf. og Garðari Hólm lgf. kynna glæsilega 2ja herbergja 65,6 fm íbúð með stórri verönd í lyftuhúsi við Freyjubrunn 23, Úlfarsárdal. 
Góð staðsetning í suðurhlíð Úlfarsárdals.
Einstakar náttúruperlur eru í göngufæri, Úlfarsárdalur, Úlfarsfell, Reynisvatn o.fl. Fjölmargir göngu- og hjólastígar bjóða uppá fjölbreytta möguleika til útivistar og tengja saman hverfin í nágrenninu.
Dalskóli er staðsettur á fallegum stað neðst í dalnum og er samrekinn leik- og grunnskóli auk frístundaheimilis. Í dalnum er einnig félagssvæði Íþróttarfélagsins Fram ásamt sundlaug. 

Nánari lýsing: 

Forstofa með góðum fataskápum. Parket á gólfi.
Eldhús með fallegri hvítri innréttingu frá HTH og tæki eru frá AEG. Tengi fyrir uppþvottavél  og ísskáp. Góður gluggi er í eldhúsi með opnanlegu fagi. Parket á gólfi. 
Borðstofa og stofa eru í samliggjandi opnu rými við eldhús. Þaðan er útgengt á stóra verönd. Parket á gólfi. 
Svefnherbergið er mjög rúmgott með góðum fataskápum. Parket á gólfi. 
Baðherbergið er með upphengdu salerni, fallegri hvítri innréttingu og speglaskáp með ljósum, tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt handklæðaofni. "Walk-in" sturta með glerskilrúmi. Flísar á gólfi.
Verönd er afgirt og er um 30 fm. Þar er heitur pottur. 
Sérgeymsla er í sameign og er hún 3,2 fm. 
Sérmerkt bílastæði er á lóð. 


Nánari upplýsingar um eignina veita:
Guðlaug Jóna lgf. í gegnum gulla@remax.is eða s. 661-2363
Garðar Hólm lgf. í gegnum gardar@remax.is eða s. 899-8811

Freyjubrunnur 23

113 Reykjavík · Grafarholt
TegundFjölbýlishúsStærð65,6 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
61.900.000 kr.944 þ./m²
Byggingarár2020InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2510782Fasteignamat57.550.000 kr.Brunabótamat44.200.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑