Opið hús í dag kl. 16:00–16:30
1 af 18Um eignina
Notalegur sumarbústaður á einstaklega gróinni og fallegri lóð við Miðengi í Grímsnesi.
Nánari upplýsingar veita:
Andrea Ósk Harradóttir Lgf. í S: 785-6698 eða andrea@palssonfasteignasala.is
Eignin skiptist í eldhús, stofu / borðkrók, tvö svefnherbergi, baðherbergi og svefnloft. Auk þess er geymsluskúr við húsið sem gengið er í utan frá.
Nánari lýsing eignar
Eldhús: Komið er inn í opið og bjart eldhús með góðu skápaplássi. Eldhúsið tengist stofu og borðkrók og nýtist rýmið því vel.
Stofa: Björt og notaleg stofa með borðkrók og parketi á gólfi. Stofa og eldhús mynda saman opið og notalegt alrými.
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð og björt svefnherbergi eru í húsinu.
Svefnloft: Rúmgott svefnloft með glugga sem býður upp á gott viðbótarsvefnpláss og nýtist vel þegar fjölskylda eða gestir dvelja í húsinu.
Baðherbergi: Notalegt baðherbergi með sturtu, salerni og handlaug.
Geymsluskúr: Geymsluskúr er staðsettur fyrir aftan húsið og gengið er í hann utan frá. Skúrinn er ekki fullkláraður.
Lóð: Eignin stendur á 3.736 m² eignarlóð sem er einstaklega gróin og skjólgóð, með miklum gróðri og háum trjám sem skapa fallega umgjörð um bústaðinn. Við húsið er pallur með heitum potti.
Staðsetning
Miðengi er í Grímsnesi. Samkvæmt upplýsingum seljanda er eignin í um 50 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík, 10–15 mínútna akstursfjarlægð frá Selfossi og 5–10 mínútna akstursfjarlægð frá 9 holu golfvelli. Ekið er inn Vaðlækjarveg þar sem skilti merkt „Vaðlækjarvegur“ er við afleggjarann.
www.eignavakt.is
www.verdmat.is
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Ath. Sumar myndir hafa verið unnar með aðstoð gervigreindar þar sem húsgögnum og lausamunum hefur verið bætt inn til að gefa hugmynd um mögulega nýtingu og ásýnd rýma. Myndirnar eru eingöngu til viðmiðunar og geta einstök atriði vikið frá raunverulegu útliti eignarinnar. Fastar innréttingar og aðrir meginþættir eignarinnar hafa ekki verið breyttir.
- Stór og gróin 3.736 m² eignarlóð
- Pallur með heitum potti
- Eftirsótt staðsetning
- Hitaveita

Miðengi
805 Selfoss (dreifbýli)
TegundSumarhúsStærð44,3 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
39.000.000 kr.880 þ./m²
Byggingarár1965InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2207812Fasteignamat28.250.000 kr.Brunabótamat32.050.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 18 myndir
Upp ↑