fasteignasölur.is
Gulaþing 38
Opið hús 14. okt. kl. 17:30–18:00
1 af 35

Um eignina

LIND fasteignasala og Lára Þyri, löggiltur fasteignasali, kynna bjarta og rúmgóða þriggja herbergja útsýnisíbúð á 2. hæð (efstu) með bílskúr í snyrtilegu fjölbýli við Gulaþing 38 í Kópavogi. Sérinngangur af svölum. Tvennar svalir, aðrar þeirra með svalaskjóli. Tvö rúmgóð svefnherbergi, sér þvottahús innan íbúðar, eldhús og stofa í opnu, björtu rými með útgengi á góðar suðursvalir, glæsilegt útsýni yfir Elliðavatn. Heiðmörk og Guðmundarlundur eru í bakgarðinum. Íbúðin er skráð 119,6 fm, bílskúr og geymsla eru saman 60,8 fm (bílskúr 42,2 fm og geymsla 18,6 fm), samtals 180,4 fm, skv. Þjóðskrá Íslands. Hægt er að leggja tveimur bílum í bílskúrnum. Falleg eign á besta stað í afar fjölskylduvænu hverfi þaðan sem stutt er í matvöruverslanir, skóla, leikskóla og sundlaug. Íþróttamiðstöðin Kórinn er steinsnar frá sem og náttúruperlurnar Elliðavatn, Heiðmörk og Guðmundarlundur. 

Íbúð 304:
Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Parket á gólfi, ljós L-laga innrétting frá Inn-X með góðu skápaplássi. Eldhús og stofa eru í opnu, björtu rými. Útgengi á 9 fm norðursvalir með svalaskjóli og timburflísum á gólfi. Glæsilegt útsýni yfir Elliðavatn.
Stofa: Opin og björt, parket á gólfi, stór gluggi, fallegt útsýni. 
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott, parket á gólfi, fataskápur. Útgengt á 9 fm suðursvalir, gólf klætt með plastflísum.
Svefnherbergi II: Parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, ljós innrétting með dökkri borðplötu, upphengt salerni, sturta með sturtugleri, hornbaðkar, handklæðaofn.
Þvottahús er innan íbúðar. Borðplata með skolvaski, hvítir efri skápar.
Bílskúr (42,2 fm) og sérgeymsla (18,6 fm) innaf, samtals 60 fm. Hægt að leggja tveimur bílum inni í bílskúrnum.
Að auki er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is
 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%  
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.  

Gulaþing 38

203 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð180,4 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
118.900.000 kr.659 þ./m²
Byggingarár2008InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2307884Fasteignamat107.450.000 kr.Brunabótamat95.850.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 35 myndir

Upp ↑