fasteignasölur.is
Kristjánshagi 6 íbúð 303
Opið hús 15. okt. kl. 16:00–16:45
1 af 22

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is

Kristjánshagi 6 íbúð 303 - Björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 3. og efstu hæð í fjölbýli með lyftu í Hagahverfi - stærð 72,3 m²

Eignin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í opnu rými, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og sérgeymslu á jarðhæð.

Nánari lýsing:
Forstofan er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Stofan og eldhúsið eru í björtu og opnu rými með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á 9,2 m² steyptar vestursvalir.
Eldhúsið er með L-laga innréttingu, góðu skápa- og vinnuplássi og parketi á gólfi. Stæði er fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu, vegghengdu wc og sturtu með glerveggjum.
Þvottahúsið er inn af forstofu, þar er innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og handlaug.
Sérgeymsla er í sameign og er skráð 3,3 m² að stærð.

Annað:
- Hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð 
- Gólfhiti er í allri íbúðinni
- Sér þvottahús
- Lyfta er í húsinu
- Möguleiki er að yfiirtaka leigusamning

Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kristjánshagi 6 íbúð 303

600 Akureyri
TegundFjölbýlishúsStærð72,3 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
59.900.000 kr.828 þ./m²
Byggingarár2021InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2507151Fasteignamat55.150.000 kr.Brunabótamat43.500.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 22 myndir

Upp ↑