fasteignasölur.is
Hólavegur 5
1 af 48

Um eignina

Aldir fasteignir og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali – 823-2800 / monika@aldirfasteignir.is kynna:
Fallegt og snyrtilegt fjögurra herbergja einbýlishús á einni hæð með sérstæðum bílskúr við Hólaveg 5 á Sauðárkróki. Húsið er steypt, byggt árið 1950, og klætt að utan með Steni-plötum. Bílskúrinn var byggður árið 1978. Frá árinu 2023 hafa eigendur gert talsverðar endurbætur á húsinu. Þau hafa málað, endurnýjað rofa, tengla og lýsingu, sett ný teppi í tvö svefnherbergi, sett nýja borðplötu og eldavél í eldhús og opnað rýmið í stofu og forstofu. Hellulagt bílaplan er með snjóbræðslu og lóðin er afgirt.

Birt stærð íbúðarhúss er 90,0 m² og bílskúrs 37,8 m², samtals 127,8 m².
Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús með bakinngangi og bílskúr.

✅ Fallegt og snyrtilegt einbýlishús á einni hæð
✅ Vel við haldið hús sem hefur farið í gegnum talsverðar endurbætur
✅ Sérstæður 37,8 m² bílskúr með rafdrifnum hurðaropnara, sér rafmagnstöflu og epoxýmáluðu gólfi
✅ Þrjú svefnherbergi, rúmgóð stofa, gott eldhús og þvottahús með auka inngangi
✅ Hellulagt bílaplan með snjóbræðslu


Nánari lýsing
Gólfefni og frágangur: Harðparket er á flestum rýmum, teppi í tveimur svefnherbergjum og flísar á baðherbergi. Gólf í forstofu og þvottahúsi að aftan er flotað. Veggir og loft hafa verið máluð og loftapanill sprautaður hvítur. Rofar, tenglar og ljós hafa verið endurnýjuð í öllu húsinu (2023), og nýir reykskynjarar og slökkvitæki sett upp.
Forstofa: Inngangur að framan um útidyrahurð sem hefur verið endurnýjuð (ár ekki vitað).
Forstofa að aftan og þvottahús: Veggur var tekinn niður og rýmið stækkað (2023). Í rýminu eru borðplata, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara og gluggi. Ný útihurð að aftan var sett upp sumarið 2026.
Eldhús: Bjart rými með borðkrók, innangengt í þvottahús og aukainngang. Hvít innrétting með flísum milli skápa sem málaðar hafa verið hvítar. Í september 2026 var sett ný borðplata, vaskur, blöndunartæki, eldavél með helluborði og höldur. Tengi er fyrir uppþvottavél.
Stofa og borðstofa: Björt og rúmgóð. Veggur var tekinn niður og stofan opnuð (2025).
Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi. Í hjónaherbergi er parketdúkur og fataskápar með speglahurðum. Í barnaherbergjum er teppi á gólfum. 
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, með sturtu, glugga, innréttingu undir vaski, speglaskáp með LED-lýsingu, nýlegu salerni og handklæðaofni.
Bílskúr: Sérstæður 37,8 m² bílskúr með rafdrifnum opnara á bílskúrshurð og gönguhurð. Veggir og loft eru máluð og gólfið epoxýmálað. Í skúrnum er LED-lýsing, sér rafmagnstafla, niðurfall í gólfi (endurnýjað 2023), vinnuborð, vaskur, ofn, gluggar og netskápur.
Lóð og bílaplan: Lóðin er 408 m² leigulóð, afgirt að framan með timburgirðingu. Hellulagt bílaplan er með snjóbræðslu.

Endurbætur fyrri eiganda (samkvæmt upplýsingum seljanda)
Húsið var einangrað og klætt að utan með Steni-plötum fyrir um 15 árum. Gler var endurnýjað í öllu íbúðarhúsinu 2012–2013. Þakjárn og bílskúr voru máluð að utan í ágúst 2023.

Ástand og annað (samkvæmt upplýsingum seljanda)
Neysluvatnslagnir hafa verið endurnýjaðar að hluta. Ástand þeirra er ekki þekkt.
Ofnalagnir eru upprunalegar. Ástand þeirra er ekki þekkt, en seljanda er ekki kunnugt um vandamál með þær.
Þak er upprunalegt. Ástand þess er ekki þekkt, en seljanda er ekki kunnugt um vandamál með það.
Gler var endurnýjað 2012–2013. Ástand glugga er ekki þekkt, en seljanda er ekki kunnugt um vandamál með þá.
Seljandi telur að fari að koma tími á að endurnýja þakrennur á íbúðarhúsi.
Raki er í einni rafmagnsdós í útvegg í litla barnaherberginu.
Kaupendum er bent á að kynna sér ástand eignarinnar vel, og ráðlagt að fá fagmann til að skoða hana.

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@aldirfasteignir.is
Júlíus Jóhannsson, löggiltur fasteignasali - 823-2600 / julius@aldirfasteignir.is

 

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Hólavegur 5

550 Sauðárkrókur
TegundEinbýlishúsStærð127,8 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
54.900.000 kr.430 þ./m²
Byggingarár1950InngangurTveir inngangarBílskúrJáFasteignanúmerF2131750Fasteignamat53.550.000 kr.Brunabótamat65.900.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmára 14, 201Sími530-6500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 48 myndir

Upp ↑