fasteignasölur.is
Brekatún 2
1 af 12

Um eignina

Einar Pálsson lgf. og Borg fasteignasala kynnir: Íbúð við Brekatún 2 - Falleg 4ra herbergja íbúð á 3. hæð með fallegu útsýni ásamt bifreiðarstæði í bílgeymslu og rúmgóðum svölum til norð- vesturs með svalalokun. Íbúðin er 115,3 m2 og þar af er geymsla á jarðhæð alls 6,7 m2.

Nánari lýsing á eign:
Svefnherbergi I: Hjónaherbergi er með gott skápapláss og flísar á gólfi.
Svefnherbergi II: Svefnherbergi er með föstum fataskáp og flísar á gólfi.
Svefnherbergi III: Svefnherbergi er með flísar á gólfi.
Baðherbergi:  Innrétting með neðri skápum og "walk in" sturtu. flísar á gólfi og veggjum og upphengt klósett.
Þvottherbergi: Þvottaherbergi er innan íbúðar með innréttingu fyrir þurrkara og þvottavél og neðri skápum ásamt vinnuborði með vask. Flísar eru á gólfi.
Eldhús: Er með efri- og neðri skápum, eyju með eldavél og háf. Eldhús er opið inn í stofu.
Stofa: Opin og rúmgóð stofa. Útgengt er úr stofu út á svalir.
Svalir: Rúmgóðar svalir, 9,7 m2 sem snúa til norð- vesturs og eru með svalalokun.
Geymslustærð: Geymslan er 6,7 m2 (nr. 119) á jarðhæð hússins.

Bifreiðarstæði er í bílageymslu. Einnig er þvottaaðstaða fyrir bíla í bílageymslunni.

Stutt er í alla þjónustu svo sem skóla, verslanir og golfvöll.

Nánari upplýsingar:
Einar Pálsson, löggiltur fasteignasali í síma 857-8392 eða á netfanginu einar@fastborg.is


Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

Brekatún 2

600 Akureyri
TegundFjölbýlishúsStærð115,3 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
98.900.000 kr.858 þ./m²
Byggingarár2014InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2347385Fasteignamat79.300.000 kr.Brunabótamat75.500.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSíðumúli 23, 108 ReykjavíkSími519-5500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 12 myndir

Upp ↑