fasteignasölur.is
Trönudalur 11
1 af 28

Um eignina

PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu fallega þriggja herbergja íbúð á jarðhæð að Trönudal 11 í Njarðvík.
Vel skipulögð og björt íbúð mér sér inngangi og verönd. Góð staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamannvirki og bókasafn.

** Sérsmíðaðar innréttingar frá Grindinni
** Vönduð tæki frá AEG, blöndunartæki frá Grohe
** Gólfhiti

Nánari lýsing:
Forstofa
með flísum á gólfi og fataskáp.
Stofa og eldhús eru í opnu björtu rými, þaðan er útgengt um rennihurð út á verönd með skjólveggjum. Parket á gólfi. Stílhrein eldhús innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, bakarofn í vinnuhæð.
Svefnherbergin tvö eru með parketi á gólfum, fataskápar eru í þeim báðum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Falleg innrétting, upphengt salerni og sturta. 
Þvottahús með flísum á gólfi. Góð innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla.

Allar nánari upplýsingar veita Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða lilja@prodomo.is og Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 899-1298 eða hakon@prodomo.is

​​​​​​Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Trönudalur 11

260 Njarðvík
TegundFjölbýlishúsStærð90,2 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
69.900.000 kr.775 þ./m²
Byggingarár2019InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2502731Fasteignamat60.300.000 kr.Brunabótamat51.050.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnargötu 15, 230 ReykjanesbæSími420-4030

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑