fasteignasölur.is
Skipalón 8
1 af 49

Um eignina

Glæsileg 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð í vinsælu húsi fyrir 50 ára og eldri við Skipalón 8 í Hafnarfirði. Sér stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni. Glæsilegt útsýni. 
Eignin skiptist þannig að íbúðarhlutinn er um 130 fm og til viðbótar eru tvennar yfirbyggðar svalir sem eru samtals 16,6 fm brúttó. Sér geymsla er á 1. hæð 9,3 fm. Samtals er eignin 166,2 fm skv. HMS. 


Nánari lýsing: Forstofa með skáp. Eldhús og stofa í björtu alrými með glæsilegu útsýni. Útg. er á tvennar svalir, báðar yfirbyggðar með opnanlegu gleri. Eldhúsið er með góðu skápaplássi og eyju. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni, þ.m.t. hjónaherbergið. Innaf hjónaherberginu er sér baðherbergi með baðkari (sturta yfir) og einnig fataherbergi. Þvottahús er sér innan íbúðarinnar. Baðherbergi með sturtu. 
Sér geymsla á 1. hæð og einnig er hjóla- og vagnageymsla í sameign. Salur sem rúmar um 55 gesti er í húsinu með eldhúsi og öllu tilheyrandi fyrir veislur, fundi o.s.frv., til afnota gegn gjaldi fyrir eigendur íbúða í húsinu.

Frábær staðsetning þar sem stutt er í helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.

Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 772-7376 / aron@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Skipalón 8

220 Hafnarfjörður
TegundFjölbýlishúsStærð166,2 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.2
134.900.000 kr.812 þ./m²
Byggingarár2007InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2292069Fasteignamat110.300.000 kr.Brunabótamat103.650.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 17, 220 HafnarfjörðurSími520-2600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 49 myndir

Upp ↑