fasteignasölur.is
Holtsvegur 47
1 af 24

Um eignina

Valhöll og Valhöll kynna:
Nýleg 105 fm, 2ja herbergja íbúð að Holtsvegi 47 í Garðabær (Urriðaholti).
Íbúðin er í rólegri götu og er á 2.h. í þessu nýlega lyftuhúsi, en útgengt er á einkaafnotaflöt frá stofu.
Sérmerkt bílastæði íbúðar á lóð.
Góð íbúð á vinsælum stað.
Húsið var byggt 2018.
Lyfta er í húsinu.
Birt stærð eignarinnar er 105,1fm. 


Hafið samband við Vilborgu í síma 891 8660 eða vilborg@valholl.is fyrir nánari upplýsingar eða til þess að bóka skoðun á eigninni.

Lýsing:
Eignin er á 2. hæð og skiptist í borstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og tvö gluggalaus rými þar sem annað þeirra er nýtt sem geymsla inn af forstofu.
Nánari lýsing:
Forstofa með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Geymsla er inn af forstofu.
Baðherbergi flísalagt, með opnu sturturými, upphengdu salerni og góðri innréttingu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa/borðstofa/eldhús liggur saman í opnu og björtu rými.
Eldhúsið er með góðum innréttingum og tækjum, parket á gólfi og eyja með grantítborðplötu.
Frá stofu/borðstofu er útgengt á svalir/verönd til suðurs sem er einkaafnotaflötur.
Svefnherbergi með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Vinnurými: Gluggalaust vinnu- eða leikrými með parketi á gólfi sem hægt er að nýta sem vinnuaðstöð, leikherbergi eða það sem hentar hverjum og einum, viftur sjá um loftskipti í geymslu og vinnurými.

Falleg eign, með marga nýtingarmöguleika, á góðum stað í fjölskylduvænu hverfi þaðan sem stutt í alla helstu þjónustu; skóla, leikskóla, verslanir, golfvelli og útivistarsvæði auk þess sem stutt er í stofnbrautir. Í sameign, sem lítur vel út, er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Nánari upplýsingar veitir:
Vilborg Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali / s. 891 8660 / vilborg@valholl.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Holtsvegur 47

210 Garðabær
TegundFjölbýlishúsStærð105,1 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
69.900.000 kr.665 þ./m²
Byggingarár2018InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2362761Fasteignamat81.650.000 kr.Brunabótamat74.300.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSíðumúli 27, 108 ReykjavíkSími588-4477

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑