fasteignasölur.is
Ferjuvað 9
1 af 22

Um eignina

Til sölu er búseturéttur fyrir 50 ára og eldri. 
Rúmgóð og björt 2ja herbergja íbúð í góðu lyftuhúsi á 2. hæð með yfirbyggðum svölum og bílastæði í bílakjallara við Ferjuvað 9 í Norðlingaholti. Sér þvottahús er innan íbúðarinnar. Göngufæri í verslun, góðar gönguleiðir og Heiðmörk. Íbúðin er laus. 

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 72,7 fm. og þar af er geymsla 6 fm. Bílastæði í bílakjallara er ekki inn í fermetratölu eignarinnar. 

Nánari lýsing eignar:
Forstofa með góðu skápaplássi og flísum á gólfi. 
Gangur með parketi á gólfi. 
Eldhús með góðri eldhúsinnréttingu,  uppþvottavél fylgir, efri og neðri skápar, helluborð, gufugleypir, ofn í vinnuhæð, gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingunni og parket á gólfi. 
Stofa rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Útgengt er út á stórar yfirbyggðar svalir úr stofunni. 
Svefnherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi. 
Baðherbergi með innangegnum sturtuklefa, góð innrétting, handklæðaofn, upphengt salerni og flísar á veggjum.
Þvottahús er innan íbúðar með hillum og skolvask.
Geymsla íbúðar er í kjallara hússins. 
Bílastæði íbúðar er í bílakjallar.

Sameign er mjög snyrtileg. 

Ásett verð búseturéttarins er kr. 28.000.000 og mánaðarlegt búsetugjald miðað við 1.ágúst er kr. 230.848.
Innifalið í mánaðarlegu búsetugjaldi er afborgun skuldabréfa, fasteigna- og holræsagjöld, tryggingar, rekstur húsfélags, viðhaldssjóður og þjónustugjald.

Búmenn er húsnæðissamvinnufélag sem hefur það markmið að auka jöfnuð og fjölbreytni í húsnæðismálum fyrir 50 ára og eldri.

Þeir sem hafa áhuga á að skoða eignina og/eða gera tilboð í búseturéttinn, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Búmanna í síma 552-5644 eða í gegnum netfangið bumenn@bumenn.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Ferjuvað 9

110 Reykjavík · Árbær/Selás
TegundFjölbýlishúsStærð72,7 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
28.000.000 kr.385 þ./m²
Byggingarár2007InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2302533Fasteignamat62.650.000 kr.Brunabótamat51.670.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 22 myndir

Upp ↑