fasteignasölur.is
Haukahlíð 10 - íbúð 524
NýttOpið hús 15. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 18

Um eignina

Nýtt í sölu - Haukahlíð 10, 102 Reykjavík - Íbúð 524 - Þakíbúð. Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin verður afhent fullbúin í febrúar 2027 með fyrirvara um öryggisúttekt.

Ef þú vilt fræðast meira um eignina eða sameignarleiðina, sendu fyrirspurn á Gabriel Mána Hallsson löggiltan fasteignasala í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is eða Svan Gunnar Gunnlaugsson í síma 697-9300 eða svan@miklaborg.is

Á sölusíðu eignarinnar í eCASA færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina.

Glæsileg og einstaklega vönduð 3ja herbergja þakíbúð á 5. hæð. Íbúðin er horn/endaíbúð og með glugga á þrjá vegu og aukna lofthæð. Birt stærð er 121,5 fm þar af 12 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í opnu rými með útgengi á þaksvalir, 2 svefnherbergi, svalir og baðherbergi. Íbúðin afhendist fullbúin samkvæmt skilalýsingu með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum, gæðarraftækjum, vönduðum blöndunartækjum og sterku og vönduðu gólfefni. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Hlíð 2+.

Nánari lýsing: Í anddyri er góður fataskápur. Anddyri opnast beint inn í stórt og þrílýst alrými, eldhús og stofu, með gólfsíðum gluggum og útgengi á rúmlega 20 fm þaksvalir í suður. Tengi fer yrir heitan pott á þaksvölum. Eldhús með stórri eyju. Svarbrún eldhúsinnrétting með viðaráferð, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og blöndunartæki úr byssubláu stáli. Innbyggður ísskápur, uppþvottavél og vínkælir. Öll raftæki í hæsta gæðaflokki. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum og útgengi á svalir í vestur. Svefnherbergi með góðum fataskápum. Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, svarbrún innrétting með viðaráferð og speglaskápur. Innbyggð blöndunartæki á baði úr byssubláu stáli. Afmörkuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 179 á teikningu. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar. Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í langtímaleigu og aðild að rekstrarfélagi bílakjallara.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Bílakjallari undir Hlíðarhorni er ekki hluti af sameign og er skv. deiliskipulagi “samnýttur”. Kjallarinn verður rekinn óhagnaðardrifinn af rekstrarfélagi. Ákveðnar íbúðir í Hlíðarhorni hafa fengið úthlutað sérmerktum bílastæðum með föstum leigusamningum. Kaupendur þeirra íbúða gerast aðilar að rekstrarfélagi bílakjallara samfara kaupum á íbúð og geta þannig haft áhrif á rekstur kjallarans til framtíðar.

Á heimasíðu verkefnissins, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni, á þessum frábæra stað í miðbænum.

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu Hlíðarhorns (sjá tengil að ofan), ásamt upplýsingum er varða hönnun og byggingu.

Nánari upplýsingar veita:

Gabriel Máni Hallsson löggiltur fasteignasali í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is

Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697-9300 eða svan@miklaborg.is

ATH: Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu byggingaraðila og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir úr íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 3.800 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Haukahlíð 10 - íbúð 524

102 Reykjavík · Vatnsmýri
TegundFjölbýlishúsStærð121,5 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
165.900.000 kr.1.365 þ./m²
Byggingarár2025InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2532743Fasteignamat50.150.000 kr.
Skráð hjá
Gabriel Máni HallssonLöggiltur fasteignasali og B.Sc. í viðskiptafræði772-2661 · gabriel@miklaborg.is
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105Sími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 18 myndir

Upp ↑