fasteignasölur.is
Vindakór 8
1 af 42

Um eignina

RE/MAX ásamt Guðlaugu Jónu löggiltum fasteignasala og Garðari Hólm löggiltum fasteignasala kynna Vindakór 8, Kópavogi.

Vel skipulögð, einstaklega rúmgóð og björt 5 herbergja íbúð á 2. hæð í Kórahverfi Kópavogs. Eignin er samtals 148,9 fm, þar af 142 fm íbúð og 6,9 fm sérgeymsla, auk sérmerkts bílastæðis í lokuðum bílakjallara með rafhleðslustöð. Hér er um að ræða fjölskylduvæna eign þar sem rúmgott alrými sameinar eldhús, borðstofu og stofu. Íbúðin býður upp á þrjú góð svefnherbergi og auðvelt er að útbúa fjórða svefnherbergið ef þörf er á.

Staðsetningin er frábær þar sem göngufæri er í leikskóla, grunnskóla, verslanir og alla helstu þjónustu. Þá eru Kórinn, íþróttaaðstaða HK, Heiðmörk, fallegar göngu- og hjólaleiðir ásamt hestamannafélaginu Spretti í örstuttu færi.


Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í góða forstofu með flísum á gólfi og góðum háum fataskápum.
Eldhús: Eldhúsið er opið yfir í borðstofu. Falleg innrétting frá Axis með góðu vinnu- og skápaplássi. Bakarofn í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél. Stór eyja með helluborði tengir saman eldhús og borðstofu. Búið er að setja fallegan stein á eldhúsið og eyjuna. 
Borðstofa: Borðstofa er rúmgóð og samliggjandi við eldhús. Þaðan er útgengt á góðar svalir. Parket á gólfi.
Stofa: Stofan er mjög rúmgóð og þar er auðveldlega hægt að setja upp auka svefnherbergi. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I-III: Eru rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfi og háum fataskápum.
Baðherbergi: Baðherbergið er rúmgott með sturtu, baðkari, upphengdu salerni og handklæðaofni. Góð innrétting frá Axis með góðum skúffum undir vaskaborði. Flísalagt með dökkum flisum á gólfi og ljósum flísum á veggjum að hluta. 
Þvottaherbergi: Þvottaherbergi er með vönduðum innréttingum fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Skúffur fyrir neðan vélar og skápar fyrir ofan og ræstiskápur til hliðar. Dökkar flísar á gólfi.  
Geymsla: Sérgeymsla er í sameign og er hún 6,9 fm.
Bílastæði: Sérmerkt í lokaðri bílageymslu og er stæðið merkt B34. Búið er að setja upp rafhleðslustöð þar. Mörg ómerkt bílastæði á lóð.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.


Allar nánari upplýsingar veitir Guðlaug Jóna lgf. s. 661-2363 eða gulla@remax.is og/eða Garðar Hólm lgf. s. 899-8811 eða gardar@remax.is 
 

Vindakór 8

203 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð148,9 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
99.900.000 kr.671 þ./m²
Byggingarár2007InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2287101Fasteignamat97.650.000 kr.Brunabótamat81.920.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 42 myndir

Upp ↑