1 af 30
Um eignina
Eignamiðlun kynnir:
Björt og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð, ásamt útleigueiningu í kjallara, í þriggja íbúða húsi við Ránargötu 7 í Reykjavík. Frábær staðsetning í einni af grónari götum bæjarins. Íbúðin er í göngufæri frá miðbænum og allri helstu þjónustu. Íbúðin er skráð 82,1 fm samkvæmt HMS. Fallegt stafaparket er í eigninni.Nánari lýsing:
Gengið er inn um sameiginlegan inngang með tveimur íbúðum efri hæðar, fallegur viðarstigi í sameign.
Gangur íbúðar tengir saman allar vistverur og er með parketi á gólfi.
Eldhúsið er bjart með snyrtilegri ljósri innréttingu og eldhúskrók, parket á gólfi.
Stofa og borðstofa með fallegri rennihurð sem aðskilur þær. Önnur þeirra er í dag nýtt sem svefnherbergi. Rúmgóðar og bjartar. Parket á gólfum.
Hjónaherbergið er án skápa og með parketi á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt með salerni og sturtu.
Sameiginlegt þvottahús í kjallara.
Í kjallara er 17,1 fm íbúðarherbergi sem getur nýst til útleigu, 8,2 fm eldhús og 4,6 fm baðherbergi.
Sameiginlegur skjólgóður garður er við húsið. Hjólageymsla í læstum undirgangi við húsið.
Viðhaldssaga:
2004: Endurnýjun skólplagna í kjallaragólfi hússins. Lagnir endurnýjaðar í plast út fyrir hús.
2011 : Nýjar svalir teiknaðar og samþykktar fyrir ris og 2. hæð.
2012: Endurnýjað rör í vegg við baðherbergi kjallaraíbúðar. Skolpstammi hússins var myndaður ca. 2021 og var í lagi. Málun utanhúss: steinveggir, gluggar, hurðir, þak - Skipt um glugga í hjólageymslu garðmegin - Nýr öryggissílender settur í útidyrahurð - Rennur og niðurföll endurnýjuð.
2022: Nýr gluggi settur í eldhús kjallaraíbúðar.
2023: Túnþökum skipt út í garði. Trjáfellingar og almenn garðvinna, t.d. ný mold í beð.
2024: Línolíumdúkur í stigagangi djúphreinsaður.
2025: Skipt út þrýstijöfnurum í hitaveituinntaki og hitaveitugrindin yfirfarin.
2026 Utanhússviðgerðir á múr garðmegin. Málari býr sig undir að mála glugga að utan garðmegin.
Það stendur síðan til að fara í rennuskipti garðmegin næsta sumar.
Nánari upplýsingar veita:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali í síma 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is
Kjartan Hallgeirsson, löggiltur fasteignasali í síma 824-9093 eða kjartan@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ránargata 7
101 Reykjavík · Miðbær/Vesturbær
TegundFjölbýlishúsStærð84,1 m²Herbergi4Svefnherb.2Baðherb.2
74.900.000 kr.891 þ./m²
Byggingarár1929InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2001792Fasteignamat73.550.000 kr.Brunabótamat46.950.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 30 myndir
Upp ↑




























