Um eignina
Bókaðu einkasýningu hjá Böðvari Reynissyni löggiltum fasteignasala í síma 766-8484 eða með skilaboðum í netfangið bodvar@eignaland.is.
Vinnusalur með ca 4ra metra lofthæð, nýlegum innkeyrsludyrum frá Héðni með manngengum dyrum í hurð, 3ja fasa rafmagni og lökkuðu gólfi og niðurfalli í gólfi.
Vinnu og verkfærarými með vinnuborði er undir millilofti innst í salnum.
Salerni er við hlið vinnu og verkfærarýmisins undir milliloftinu. Hvít innrétting með handlaug, vegghengt salerni og flísalögð sturta. Flísar á gólfi.
Milliloft/kaffistofa með nýlegu parketi á gólfi og eldhúsinnréttingu og rými fyrir sófa, matarborð ofl. Nýlega var skipt um gler í hluta glugganna í rýminu.
Upplýsingar úr eignaskiptayfirlýsingu:
02-01-03
Séreign:
Iðnaðarhúsnæði 69,6 m að stærd -
ATH! við bætist óskráð milliloft. Samtals er húsnæðið því ca 85m²
Eignarhlutfall ií húsi matshl. 02 er 12,43%,
Eignarhlutfall í heildarl6ð er 8,74%,
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.
Trönuhraun 7
Staðsetning
Allar 9 myndir
Upp ↑







