Um eignina
Um er að ræða sumarhús sem stendur á 5.000 fm eignarlóð á fallegum stað í Kjósinni í aðeins um 40 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborginni. Húsið stendur ofarlega á lóðinni með fallegu útsýni út á sjó. Mikill gróður og tré eru á lóðinni. Bústaðurinn stendur á súlum, hitaveita komin að lóðarmörkum, rafmagnsofnar. Árlegt sumarhúsagjald er um 15.000 kr ári. Allt innbú fylgir með í kaupunum fyrir utan persónulega muni.
Birt stærð skv. HMS: Sumarbústaðurinn er 57,9 fm, merktur: 01-01 ásamt 12,5 fm geymslu / vinnskúr merktur: 01-01, samtals: 70,4 fm.
Nánari lýsing eignar: Komið er inn í anddyri / forstofu. Á hægri hönd við inngang er baðherbergi og innaf baðherberginu er sturta og nýlegur 150 L hitakútur. Eldhús með parketi á gólfi, borðkrókur. Parketlögð stofa. Við stofu er garðskáli / viðbygging með parket á gólfi. Tvö svefnherbergi. Á lóðinni er 12,5 fm geymsla / vinnuskúr með glugga.
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@aldirfasteignir.is
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.
Hvammur 2
Staðsetning
Allar 20 myndir
Upp ↑


















