Um eignina
PERLA – HÚS Á SPÁNI Í 20 ÁR.
Perla Investments kynnir: Glæsileg einbýlishús með einkasundlaug
Glæsileg nýbyggð einbýlishús í eftirsóttu íbúðarhverfi í Rincón de Loix í Benidorm, aðeins um 1 km frá Miðjarðarhafinu. Um er að ræða 27 hús með nútímalegri hönnun, einkalóðum frá 500 m² og einkasundlaug. Hægt er að velja á milli húsa með þremur eða fjórum svefnherbergjum, á einni eða tveimur hæðum.
Húsin eru hönnuð með áherslu á birtu, þægindi og næði, með stórum gluggum, rúmgóðum veröndum og yfirbyggðum útisvæðum. Sum húsanna eru með rúmgóðum bílskúr í kjallara en önnur með tveimur bílastæðum. Innandyra eru vönduð gólfefni og flísar frá Porcelanosa, fullbúið eldhús með heimilistækjum, innbyggð loftkæling, gólfhiti og loftvarmadæla fyrir heitt vatn. Húsin eru einnig búin sólarsellum og snjallheimiliskerfi sem gerir kleift að stjórna meðal annars lýsingu, hitastigi, gluggahlerum og öryggiskerfum. Í sumum húsum er einnig lyfta eða forlögn fyrir lyftu.
Rincón de Loix er vinsælt svæði í Benidorm, þar sem rólegt íbúðarumhverfi fer saman við fjölbreytta þjónustu, verslanir, veitingastaði og afþreyingu. Levante-ströndin er í um 1 km fjarlægð, miðbær Benidorm í um 2 km og La Marina verslunarmiðstöðin í um 6 km. Puig Campana golfvöllurinn er í um 7 km fjarlægð og Alicante flugvöllur í um 58 km.
Þessi hús henta vel sem framtíðarheimili, sumarhús eða fjárfesting á eftirsóttu svæði Costa Blanca.
Endilega hafðu samband fyrir frekari upplýsingar eða til að bóka skoðun.
Þú finnur þessa eign inn á heimasíðu okkar á: https://perlainvest.com/eign/7424/glaesileg-einbylishus-med-einkasundlaug/
REF: NB-33996
Fylgdu okkur á Facebook -www.facebook.com/Perlainvest
Kynntu þér svæðið, kaupferlið á Spáni og mikið úrval hágæða eigna á www.perlainvest.com eða sendu okkur línu á info@perlainvest.com . Allar upplýsingar eru veitar í síma 8933911 eða 0034-654832793.
Bjóðum einnig uppá á leiguþjónustu. Kynntu þér málið nánar á https://perlaholidays.com/ic/
Vertu velkomin í sérsniðna, allt að 7 daga, skoðunarferð til Spánar með flugi og gistingu. Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar með því að senda fyrirspurn á info@perlainvest.com
Perla Inv. - Glæsileg einbýlishús með einkasundlaug
Allar 28 myndir
Upp ↑


























